Saturday, March 27, 2010

Alveg án súrefnis

Í dag, laugardag, þá erum við komin heim í dagsleyfi, förum sem sagt á spítalann í kvöld og verðum yfir nóttina og fáum svo að fara heim aftur á morgun.

Björgvin hefur verið meira og minna án súrefnis síðan á miðvikudaginn en honum vantaði mikið þol, þannig að þegar hann hleypur eða grætur þá sígur hann fljótt í súrefnismettun, en þolið eflist með hverjum deginum.

Skoppa og Skrítla komu að heimsækja vin okkar í stofunni við hliðina seinustu helgi og þær kíktu á Björgvin í leiðinni, hann skildi ekkert í þessu, var að horfa á þær í sjónvarpinu þegar þær birtust allt í einu. Hann var svo feiminn að hann þorði varla að horfa á þær!

Mikið er gott að vera heima hjá sér með prinsinn sinn. Það þarf ábyggilega mikið að ganga á þegar manni finnst það mikil forréttindi að geta verið heima hjá sér með barnið sitt. Við höfum nú verið meira en helming af þeim tíma sem liðinn er af árinu á spítala. Nú ætlum við að útskrifast af spítalanum og fara að snúa þessu við.

Í dag ætlum við í pönnsur til Nínu og svo förum við aftur á spítalann í kvöld. Ef allt gengur eftir þá útskrifumst við á morgun, krossum fingur! :)

Knús og kram
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Sunna og co said...

Júlía er í sjokki yfir þessum atburði að Skoppa og Skrítla skuli hafa heimsótt Björgvin. Trúði varla sínum eigin augum :)

Risaknús frá okkur öllum, þið eruð svo miklar hetjur!

Anonymous said...

The only way is up!

Kv.
Hrund

Anonymous said...

Vona að þið séuð útskrifuð elsku Björgvin og Ásdís og allt gangi vel hjá ykkur. Við hugsum til ykkar.
Kær kveðja,
Vinurinn í næsta herbergi og foreldrar.

HeLP said...

Vonum að allt sé á hraðri leið uppávið og að þið séuð komin heim í sæluna ;) Það er nóg komið af spítalavist!!

Kramar frá okkur öllum