Tuesday, March 16, 2010

Skref fram á við

Jæja við komumst á almenna deild í gær eftir sólarhring á gjörgæslunni. Björgvin slapp við öndunarvél þar sem hann brást vel við lyfjunum. Hann er mjög slappur ennþá, hefur lítið þrek en er rosalega duglegur eins og alltaf.

Við fórum í smá stund á leikstofuna í morgun og eftir klukkutíma vakandi þá þurfti hann að leggja sig.


Hér er hann á leiðinni á leikstofuna í vagninum.


Hann eldaði mat handa mömmu sinni, kjötbollur með ristabrauði og svo var melóna í eftirrétt, mimmm þvílíkt lostæti :)

Læknarnir segja að hljóðið í lungunum sé betra þannig að þetta er allt á rétt leið hjá okkur.

Knús frá Barnaspítalanum
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Sunna, Maggi og stelpurnar said...

Namminamm, kjötbollur!

Þið standið ykkur ekkert smá vel, sannkallaðar hetjur!

Knús og kram frá Sverige

María Helen said...

Sætastur.....
Mikið rosalega er þessi drengur heppinn að eiga svona einstaka mömmu, svo hjartahlý og góð!!!!
Knús & kossar til ykkar
Kv. María Helen & Elfa Dís

Unknown said...

Elsku Ásdís mín,
mikið er gott að heyra af þessu jákvæða skrefi fram á við, þið eruð algjörar hetjur, við hugsum til ykkar, stórt knús frá Dóru og fjölskyldu.

Anonymous said...

Bestu batakveðjur til ykkar elsku Ásdís og Björgvin. Kiss kiss - Fjóla og dætur