Monday, March 22, 2010

Hress sykurpúði

Björgvin leikur á alls oddi á spítalanum, heillar alla upp úr skónum eins og honum einum er lagið. Hann er svakalega hress og lungnamyndin kom mjög vel út í dag. Hann þarf ennþá súrefni samt en hann hlýtur að hrista þetta af sér fyrir páska.

Tinna Elíza kom að heimsækja hann á sunnudaginn, hann var ekkert smá ánægður með þetta og fóru þau á rúntinn saman, Tinna bauð líka upp á grænan ópal sem var alveg að slá í gegn hjá Björgvini :)


Nína kom til okkar í dag og var knúsuð bak og fyrir, Björgvin var svo ánægður með hana, vildi bara sitja hjá henni og segja henni sögur.


Hér vorum við mæðgin að kubba turn og Björgvini fannst mikið stuð að henda öllu um koll og lá í hláturskasti.

Vonandi fer þetta allt að koma hjá honum, læknarnir vilja halda honum í tvo sólarhringa á spítalanum eftir að hann getur losnað við súrefnið, nú verður hann bara að drífa í þessu :)

Knús frá barnaspítalanum
Ásdís og Björgvin Arnar

7 comments:

Anonymous said...

Þetta smá-kemur! Vonandi fer vel um ykkur á spítalanum.
Kv. Hrund

Anonymous said...

Glæsilegt, Björgvin er greinilega allur að hressast m.v. myndirnar enda kannski ekki furða fyrst að spítalinn ákvað að kaupa fleiri svona flotta babu (bíla) :) Bílarnir eru auðvitað tilefni til að vera hress og kominn á stjá. :)

Kveðja Ester og co

Kristrun said...

Það er svo gott að fá fréttir um að þetta sé allt að koma :)

Kv. Kristrún

Sunna og co said...

Gott að heyra að þetta sé á leið í rétta átt!

Og gaman að sjá myndir af sætasta sykurpúðanum, takk fyrir að vera svona dugleg að leyfa okkur að fylgjast með :)

Lilja Björg said...

En gott að heyra. Hann er svo duglegur og ekki við öðru að búast en að hann hristi þetta af sér.

Kveðja,
Lilja Björg.

Linda said...

Litli karlinn virðist mjög glaður sem hlýtur að vera gott batamerki!

Hafið það sem allra best!
Linda, Sindri og Kidz

Hólla og Sif Celeste said...

Hann er svo sannarlega lítill sætur sykurpúði hann Björgvin, algjör krúttarakarl! Vona að hann sé að hressast og þið komist heim sem fyrst :) Kveðja Hólla og Sif Celeste.