Friday, March 12, 2010

Hóst hóst hóst ...

Við erum enn hér á Barnaspítalanum í góðu yfirlæti hjá læknum og hjúkrunarfólki. Björgvin er með svo mikið slím ofan í sér að það liggur við að maður kafni við að heyra hann hósta. Við fáum sjúkraþjálfara til okkar þrisvar á dag til að banka hann og losnar mikið af slími við það.

Ástæðan fyrir þessu er að hann var svo viðkvæmur í lungunum eftir lungnabólguna í janúar og þegar verið er að krukka svona í öndunarveginum þá bregst hann við með slímmyndun. Hann fær púst á tveggja tíma fresti og er orðinn þokkalega þreyttur á þessu öllu saman.

Við lyftum okkur upp með því að fara á leikstofuna og leika með dótið. Björgvini finnst skemmtilegast að elda matinn og hann lagðist inn í hillu og lagði sig á meðan maturinn mallaði í pottunum.

Við erum einnig búin að fá marga góða gesti til okkar og höfum náð fáum á mynd en hér kemur myndasyrpa með nokkrum þeirra :)


Sunna er í heimsókn frá Svíþjóð og kíkti til okkar í heimsókn. Mikið var nú gaman að sjá hana.


Amma og afi komu náttúrulega til okkar, ekki að spyrja að því og við fórum á röltið og Björgvin keyrði löggubílinn út um allt sjúkrahús.


Ragnhildur Sara og Björgvin horfðu saman á Latabæ og fengu sér smá snakk með, hvað? maður fær nú allt sem maður vill þegar maður er á spítala! :)


Björgvin vill alltaf að mamma sofi hjá honum og veri hjá honum á meðan hann er að sofna. Auðvitað gerir hún það! Ekkert annað er í stöðunni en að kúra við prinsinn sem er uppgefinn eftir stanslaust hóstarí.

Við fáum kannski að fara heim á morgun í leyfi með súrefni með okkur, vonandi rætist það.

Við viljum óska Óla bróður/frænda í Noregi innilega til hamingju með afmælið í dag, afmælisknús á þig!

knús og kram
Ásdís og Björgvin Arnar

1 comment:

Sunna og fjölskyldan said...

Mikið var yndislegt að koma hitta ykkur!
Vildi bara gæti komið oftar og knúsað ykkur, við söknum ykkar ægilega mikið!

Við sendum baráttukveðjur frá Stokkhólmi, það vantar ekki hvað þið eruð ótrúlega dugleg og seig.

knús