Sunday, March 14, 2010

Babú babú babú

Við fórum heim í helgarleyfi með súrefni og mónitor meðferðis, það er ekki frásögufærandi en að það gekk ekki betur en svo að Björgvin varð mjög slæmur í morgun, átti erfitt með andadrátt, og við fórum með sjúkrabíl inn á Barnaspítala. Við vorum færð inn á bráðamóttöku og blóðprufur teknar og þegar niðurstaðan kom úr þeim þá vorum við sett á gjörgæslu og við verðum þar í nótt.

Þetta kallast að taka tvö skref aftur á bak og á morgun ætlum við að taka skref áfram :)


















Hérna erum við mæðginin að grínast eða kannski er betra að segja að Björgvin sé eitthvað að stríða mömmu sinni þarna, algjör grallari!

Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Anonymous said...

Góðir hlutir gerast hægt! Nú fer þetta alveg að koma!
Koss og knús!
Nína og co,

Þórey Arna said...

Ekki gott að heyra en vonandi er þetta allt á réttri leið núna og þið getið tekið skref ÁFRAM í beinu framhaldi!!

Knús á ykkur,
Þórey Arna

Anonymous said...

Morgunknús á ykkur fallegu mæðgin æðisleg myndin og manni hlýnar alltaf aðeins við að sjá brosið á myndunum.

Vonandi verðið þið komin fljótt heim.

Ester og co :)

Anonymous said...

Við hugsum til ykkar og vonum að allt fari vel.

Kveðja frá Vidargötunni í Stokkhólmi.