Björgvin borðar meira og er þróttmeiri en seinustu daga, hann er glaður og kátur og stríðir mömmu sinni óspart, það hlýtur að vera allt merki um skref fram á við!
Hann vildi rúnta í babú babú bílnum og var farið með hann nokkra kílómetra í morgun, út um allan spítala, gang eftir gang.
Takið eftir að aldrei er langt í pelann sem er fullur af næringadrykk með fullt af kaloríum.
Nú á bara að bíða og taka stöðuna á mánudaginn, þá verður tekin lungnamynd og rætt um næstu skref, þá er bara eins gott að Björgvin verði búinn að sýna mikinn bata.
Krossum fingur og vonumst til að helgin verði góð.
Knús og kossar
Ásdís og Björgvin Arnar
5 comments:
Hann er sko bestastur hann Björgvin Arnar!!
Hlakka til að hitta ykkur hetjurnar mínar í maí :)
Risaknús
Dagbjört og gengið
Það er gott að sjá að Björgvin sé hressari! Vonandi fara hlutirnir svo að ganga ykkur í hag :)
bestu kveðjur,
Kristrún
Fallegu mæðgin - maður fylgist með á síðunni og sendir ykkur góða strauma. Þið eruð auðvitað langflottust :)
Knús og kram
Lóa
Elsku Ásdís og Björgvin Arnar.
Gott að heyra af hænuskrefunum og bið biðjum til guðs að svo verði áfram og að hann gefi ykkur styrk í þessari erfiðu raun. En þið eruð algjörar hetjur bæði tvö. Farið vel með ykkur og heyrum af ykkur sem fyrst. Knús og kossar. Kristín Amelía og fjölskylda.
Elsku Ásdís. Mikið er gott að lesa um að Björgvin sé betri. Við hugsum mikið til ykkar og sendum ykkur baráttustrauma.
Puss och kram,
Rakel og Gummi
Post a Comment