Wednesday, March 17, 2010

Allt í hershöndum

Björgvin hræddi næstum því líftóruna úr mömmu sinni i gær þegar hann fór að hafa verulega öndunarerfiðleika.  Við sátum frammi í matsalt í mestu makindum þegar hann byrjaði að haga sér óeðlilega, brjóstkassinn gekk upp og niður og augun hálflokuðust.

Mikið af læknafólki tókst að koma honum í stöðugt ástand og síðan vorum við flutt á gjörgæsluna, eina ferðina enn. Læknarnir vita ekki alveg hvað er best að gera í stöðunni en þeir eru að stúdera alla möguleika ef honum fer ekki að batna verulega á næstu dögum.

Við komum svo aftur á deildina í dag þar sem nóttin gekk vel og dagurinn hefur verið góður. Pabbi hans kom heim í gær og ætlar að hjálpa okkur að koma honum til heilsu.


















Þessi mynd var tekin áðan, Björgvin orðinn syfjaður og að fara að leggja sig.

Ég vona svo innilega að ekki verði fleiri svona óvænt uppákomur, það er nóg komið og nú má batinn koma hratt og örugglega.

Takk fyrir alla póstana, sms-in, heimsóknirnar og hlýjar hugsanir!
Knús til ykkar allra.
Ásdís og Björgvin Arnar

7 comments:

Linda said...

Baráttukveðjur til ykkar. Vesalings litli snúðurinn. Það er allt of mikið á hann lagt.

Anonymous said...

Litla hetjan okkar. Það er mikið á ykkur lagt en þið standið ykkur svo vel.
Takk fyrir að vera svona dugleg að blogga og færa okkur fréttir.
Sendum ykkur góða bata strauma og góðar bænir.

Nú fer þetta að allt að koma ;)

knús og kram á ykkur

kv. Inga Birna

Anonymous said...

Takk fyrir að vera svona dugleg að láta okkur vita stöðuna á Björgvini Arnari. Hann er sko sannarlega algjör hetja sem því miður er allt of mikið lagt á þessa dagana. Sendi ykkur mínar bestu batakveðjur
Inga Huld

Solla said...

sendi ástarkveðjur til litla krúttsins duglega

Anonymous said...

Úff segi ég nú bara og tek undir orð þín - þetta er komið nóg! Hef fulla trú á að þetta fari að lagast og hann verði fljótur að ná heilsu þessi elska. Hafið það sem allra best. Batakveðjur, Fjóla og co

HeLP said...

Baráttukveðjur og ósk um góðan og snöggan bata.
Litli gullmolinn berst greinilega hetjulega í öllum þessum erfiðleikum. Það hjálpar honum án efa óendanlega mikið að eiga svona sterka og duglega mömmu.
Vona sannarlega að lífið verið ykkur auðveldara með hækkandi sól.

Batakveðjur og risa knús frá okkur
Linda og co

Sunna og co said...

Æj litli snúður.

Við JJ og ES munum eftir ykkur í kvöldbænunum okkar, vona virkilega með ykkur að þetta hafi verið síðasta slæma uppákoman!