Björgvin Arnar er svo duglegur að pissa í koppinn sinn þessa dagana, er orðinn svo stór og alveg kominn með nóg af því að vera með bleiu. Hann vill alltaf sitja öfugt og koppinum og losa úr honum sjálfur í klósettið, það getur orðið frekar subbulegt svo að ekki sé meira sagt!
Björgvin fer í þriðju aðgerðina á öndunarveginum í fyrramálið. Skurðlæknirinn sem er búinn að framkvæma tvær seinustu aðgerðir kom til landsins í dag og mun vera hér fram á sunnudag. Hann kemur með son sinn með sér og ætlar að reyna að sjá eitthvað af Íslandi í leiðinni. Það er enginn smá léttir fyrir okkur að fá hann hingað heim og losna við ferð til Stokkhólms.
Það koma fleiri fréttir af aðgerðinni og líðan Björgvins næstu daga.
Knús og kram
Ásdís og Björgvin Arnar
Wednesday, March 3, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Erum að hugsa til ykkar elskurnar! Knús til ykkar xxx
Kv. Bylgja, Bjarni og co
Við hugsum líka til ykkar, gangi ykkur ROSA vel!!
Tata,
Þórey Arna og co
Duglegur á koppnum :D
En ég kannast einum of vel við þetta vandamál að vilja tæma sjálfur... :þ
Ég heyri í ykkur bráðlega, hlakka ekkert smá til að sjá ykkur!
kram
Post a Comment