Grísk-sænski skurðlæknirinn var alsæll með árangurinn, hann sá svo til þess að íslenski læknirinn fékk góða kennslu og ætlar hún að framkvæma næstu tvær aðgerðir hér heima, í vor og svo seinni í haust.
Það kom upp smá óhapp í aðgerðinni, vélin sem dældi vökvanum í æð bilaði og dældi 900 ml í staðinn fyrir 100 ml. Þetta var frekar óheppilegt þar sem Björgvin á alltaf vandamál með mikinn vökva í lungum og svo er þetta auka álag á hjartað en þetta uppgötvað strax og brugðist var við þessu þannig að honum varð ekki meint af og maður getur þakkað fyrir það að þetta var ekkert lyf heldur bara vökvi.
Sama dag og aðgerðin var framkvæmd þá var hann mjög hress og settist upp og vildi horfa á mynd, því vorum við færð niður á Barnaspítala þar sem gjörgæslan var alveg full. Björgvin var ekkert óhress með að fá að fara í babú babú bílinn :)
Í gær þá var hann orðinn aðeins verri í önduninni, það var aukið við adrenalín púst og honum gefnir sterar en svo þurfti hann á smá súrefni að halda, það er mjög algengt að svona viðbrögð við aðgerðinni komi fram meira en sólarhring seinna. Hann er svo viðkvæmur í öndunarfærunum.
Hann var samt betri í önduninni í morgun þó svo að hann sé ennþá með súrefni. Vonandi losnar hann við það á morgun svo að við getum farið heim á mánudaginn.
Öndunarvegurinn verður búinn að gróa vel eftir viku og þá verður hægt að finna og sjá hvernig þetta hefur áhrif á hann, vonandi verður þetta allt annað líf og hann fái meiri kraft og geti borðað meira af fastri fæðu.
Björgvin verður svo alveg heima fram yfir páska og þá fer hann kannski á leikskólann fyrir hádegi, bara aðeins til að sjá krakkana og komast aðeins út af heimilinu.
Knús og kram frá Barnaspítalanum.
Ásdís og Björgvin Arnar
6 comments:
Þið eruð alltaf sömu hetjurnar :)
Gott að vita að allt gengur vel, okkar bestu óskir um áframhaldandi bata, Dóra og fjölskyldu!
Frábært að heyra hvað allt lítur vel út. Gangi ykkur vel áfram og ég fylgist með hér.
Farðu vel með þig, Ásdís mín.
Kveðja,
Lilja Björg.
Það er gott að sjá að aðgerðin virðist hafa gengið vel :)
Baráttukveðjur úr Krókavaðinu,
Kristrún, Aggi og synir
Til hamingju með að hafa lokið enn einum áfanganum! Bestu óskir um bata frá Norðurvallagenginu.
Kv
Hrund
Hæ Ásdís mín, gaman að fá að fylgjast með hvernig gengur hjá ykkur mæðginunum og frábært að aðgerðin hafi gengið svona vel! Vona að Björgvin Arnar braggist fljótt og vel og komist heim sem fyrst. Gaman væri að fá að hitta ykkur, kannski að við gætum hist með grísina hjá Hörpu einhverntímann þegar litla hetjan verður orðin hress :) Kveðja Hólla og Sif.
Post a Comment