Saturday, May 7, 2011

Dagur 5 í Boston - Úr öndunarvélinni

Ekki voru fleiri aðgerðir eða rannsóknir gerðar í dag. Lungnalæknarnir treystu Björgvini ekki í að fara í berkjuskoðun og sýnatöku þar sem myndavélin sem þau nota var litlu minni en rörið sem var ofan í Björgvini og hætta var á súrefnisleysi á meðan skoðun stóð. Það var þeirra mat að áhættan var ekki ávinningsins virði og því var ákveðið að taka Björgvin úr öndunarvélinni í dag.


Hvati og íþróttaálfurinn bíða eftir að Björgvin leiki með sig. Hvati er að geyma sokkana hans.

Um miðjan dag í dag þá var farið að draga úr svefnlyfi og verkjalyfjum og þá fór Björgvin að vakna smá saman og pirrast svakalega yfir því að vera í öndunarvélinni. Einnig er þá dregið úr styrk öndunarvélarinnar og hann fer að anda meira sjálfur og svo að lokum andar hann sjálfur en vélin styður við hann ef með þarf. 

Hann barðist um og grét og ekkert heyrist í manni í öndunarvél. Hann bað um vatn, alltaf svo þyrstur.  Svo á réttu augnabliki þá var hann rörið tekið úr honum og hann er voðalega hás til að byrja með og hóstar mikið. Biður um vatn og er mjög æstur og líður illa. Svo nær hann að slaka aðeins á og sofnar smá. Hann fékk smá skjálfta sem er spurning hvort hann sé í fráhvörfum af morfíninu, hjúkrunarkonan ætlaði að tala við læknana um það.


Það er mikill léttir að hann sé kominn úr öndunarvélinni, það er alltaf frekar stressandi ferli og erfitt að horfa á hann ganga í gegnum þetta og von um að honum gangi vel að anda sjálfur.  Þau voru alveg hissa á hvað hann var duglegur og hvað öll gildi voru miklu betri en þegar hann var í öndunarvélinni. Harðjaxlinn minn! :)

Við eigum eftir að heyra um næstu skref en það er verið að skoða allar niðurstöður betur og gera áætlun til að finna út úr þessu með lungnavandamálin hans og súrefnisþörfina.

Harðjaxlakveðja frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar

11 comments:

Anonymous said...

Harðjaxlar eruð þið, svo mikið er víst!

baráttukveðja, Bjarki

Anonymous said...

Ójá, sammála sídasta rædumanni!
Knús, Nína.

Anonymous said...

Gott að það gekk vel að losna við öndunarvélina :)
þið eruð hetjur

Kv.
Svava, Aggi, Hulda María og lilli

Anonymous said...

Baráttukveðja til ykkar harðjaxlana og knús til ykkar. Kv. Hólmar

Anonymous said...

Baráttukveðjur til ykkar, þið eruð algjörar hetjur
knús á litla harðjaxlinn þinn
kv
Heiðrún og co.

Anonymous said...

þið eruð allt í senn, hörkutól, hetjur og harðjaxlar!
Gangi ykkur vel með næstu skref.

Baráttukveðja,
Hrannar

Anonymous said...

Endalaust duglegur alltaf hreint!
Kv. úr Kef,
Hrund og co

Anonymous said...

Mikið mikið gott hjá hetjunni
og gott að heyra að skynsemin ræður og engir óþarfa sénsar teknir :)

Hann er ótrúlegur þessi drengur að að vera komin úr vélinni og allt gangi vel :)

Knús Ester og co

Óli said...

Gangi ykkur vel og barattukveðjur fra öllum a svölutjörn 49

Anonymous said...

Hann er svo mikil hetja hann Björgvin og gangi ykkur vel með framhaldið.Hulda frænka

Anonymous said...

Þetta sýnist mér allt vera að koma þó svo mjög hægt gangi, en mest um vert er að vera bjartsýn og treysta á læknana. Þið eruð með þá bestu, Guði sé lof.
Þúsund kossar til ykkar beggja frá Olg´ömmu <3