Thursday, May 5, 2011

Dagur 4 í Boston - Hjartaþræðing hafin

Loksins er Björgvin farinn í hjartaþræðinguna. Hann átti að vera fyrstur inn en svo kom í ljós að hann var annar í röðinni og þurfti að vera fastandi og þessi tími var mjög erfiður, hann var svo þyrstur og svangur og grét stanslaust.

Fyrst verður gerð ómskoðun í einn og hálfan tíma og svo hefst hjartaþræðingin sjálf. Þetta mun því taka um  4 - 5 tíma og fáum við fréttir á klukkutíma fresti.

Á eftir mun hann vera fluttur á gjörgæsluna þar sem þau þora ekki að taka hann úr öndunarvélinni strax og mun hann vera í henni næstu daga, fer eftir hvernig allt gengur hjá honum. Þeir vilja hafa þetta svona til að gæta fyllsta öryggis.

Það var svo erfitt að skilja hann eftir vakandi, það er öðruvísi í Stokkhólmi þá mátti ég vera með hann þangað til að hann var sofnaður en hér er það ekki leyft. En hann mun vera í góðum höndum og nú er eina vitið að fá sér að borða og biðja fyrir því að allt gangi vel með litla krúttmolann minn.

Þetta er það sem við erum búin að vera að bíða eftir, nú er fyrsta skrefið til að hjálpa honum hafið, þetta ferli skal hafa góðan endi :)

Ásdís

10 comments:

Anonymous said...

Elsku Ásdís

Ég mun senda ykkur hlýja og góða strauma og ég hef enga trú á öðru en að þetta gangi vel hjá litlu hetjunni þinni
Knús á ykkur, þið eruð ótrúlega dugleg
kveðja
Heiðrún og co.

Anonymous said...

elsku litli molinn... hugsa til ykkar og bið líka um að þetta gangi sem allra allra best. Knús. Ragga

Anonymous said...

Sendi ykkur hlýjar hugsanir og kveðjur yfir hafið. Vona að allt gangi vel. Kossar og risaknús frá okkur öllum, Hanna María

Anonymous said...

Hann er svo mikil hetja :) sendum ykkur hlýja strauma yfir hafið
knús á ykkur öll
Svava, Aggi, Hulda María og litli kútur

smaja said...

Þið eruð í hjörtunum okkar...við trúum því að allt gangi vel. Sendum þétt faðmlag til ykkar allra. Sigga Maja og co

Anonymous said...

Vona að allt hafi gengið vel í dag. Nú finna þeir út úr þessu. Sendi jákvæða strauma til ykkar.
Bestu kveðjur,
Rakel

Anonymous said...

Elsku besta frænka og frændi.

Batakveðjur til Björgvins hetju. Hann er svo duglegur og sterkur.
Og það er ekki hægt að biðja um betri mömmu !!. Stendur þig svo vel:*

Love you

Eyrún frænka, Elvar Berg, Helgi og Stjarna:)

Anonymous said...

Litla hetjan er greinilega að ganga í gegnum þvílíkar raunir, mikið rosalega er hann duglegur og þú sterk kona elskan.
Er fullviss um að þessir sérfræðingar komist að því hvað er að valda öllu þessu veseni og að það sé eitthvað sem má laga.
Sendi ykkur mína hlýjustu strauma
xxx
Ella María

Anonymous said...

Mamma biður líka að heilsa ykkur og sendir góðar kveðjur :) Las alla pistlana fyrir hana í símann.
kv.
Rakel

Allý said...

Risaknús á ykkur! Hugsa til ykkar stanslaust og get ekki beðið eftir að hitta ykkur þegar þið komið heim! Skilaðu kveðju frá mér