Wednesday, May 4, 2011

Dagur 2 í Boston - Hetjan litla

Björgvin er svo mikil hetja, það sem er lagt á lítinn kropp, alltaf verið að hlusta og taka lífsmörk og stinga hann mörgum sinnum á dag og draga blóð.

Dagurinn í dag er búinn að ganga vel, ekki alveg eins slæmur og í gær, fyrir Björgvin. Það voru að vísu teknar tvær blóðprufur og einnig voru tvær blóðprufur teknar í nótt. Þeir eru að taka stöðuna á blóðþynningunni og það tekur alltaf smá tíma að ná henni góðri. Einnig fórum við í lungnaskanna í dag þar sem blóðflæðið og einnig loftflæði í lungunum var mælt. Við eigum eftir að fá niðurstöður úr þessari rannsókn.

Við erum í einangrun þar sem hann er búinn að vera með einhverja sýkingu og þau vita ekki hver hún er nákvæmlega. CRP var um 200 sem er mjög hátt. Þannig að við verðum að una okkur inni á stofunni og höfum víst gert annað eins í marga daga :)


Björgvin hefur ekki haft mikla krafta eftir öll átökin þannig að hann hefur legið mestan tímann fyrir, en stöku sinnum vill hann sita og horfa á eitthvað með íþróttaálfinum sínum. Þeir félagar bralla ýmislegt saman.

Svo talaði hann við ömmu, afa og Andreu Björt í símann í dag, glaður að heyra í þeim og hann sagði við ömmu sína "Amma? Læknirinn ætlar að lækna mig aðeins meira og svo kem ég heim til þín".



Við stofnuðum hljómsveit og erum búin að syngja mikið.

Ég fór út í göngu í dag, hér er 17 stiga hiti og allt grænt og fallegt. Gekk út að Harvard háskóla og sá þar fólkið þjóta frá og til skóla. Skrítið að ganga um göturnar hérna aftur og ekkert hefur breyst á þremur árum. Hér eru sum andlitin kunnugleg og muna hjúkrunarkonurnar eftir okkur.


Það er ekkert á dagskránni á morgun eftir því sem við best vitum nema ein blóðprufa til að hafa allar upplýsingar fyrir hjartaþræðinguna sem verður framkvæmd á fimmtudaginn. 

Takk fyrir öll kommentin, manni hlýnar sko um hjartarætur að sjá hve margir hugsa til okkar.

Bostonkveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar

17 comments:

Anonymous said...

Gott ad gærdagurinn var betri. Hann er sko hetjan okkar og hugur manns er stanslaust hjá ykkur.
Knús.
Nina og co.

Anonymous said...

Gott að heyra að þið áttuð léttari dag í gær og að dagurinn í dag verður líka rólegur, ekki veitir af fyrir átökin á morgun!!
Knús frá okkur öllum!!!
Dagbjört og co

Anonymous said...

Það er flottur strákur þarna á ferð. Gott að heyra að þessi dagur var betri. Hugsum stöðugt til ykkar, gangi ykkur vel
knús og kossar
Heiðrún og co.

Anonymous said...

Gott að heyra að dagurinn hafi gengið vel. Vonandi eigið þið rólegan og góðan dag fyrir átökin framundan.
Gangi ykkur rosalega vel!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Björgvin er svo mikil hetja, njótið dagsins í dag sem best og farið vel með ykkur svo hann verði sem mest hvíldur og sterkur fyrir orustuna á morgun :)

Gangi ykkur vel, risaStubbaknús frá okkur Ester og co

Anonymous said...

Hann er mesta hetjan af öllum sá litli og það skemmir ekki að eiga svona nagla sem mömmu heldur :)

Bjarki

Anonymous said...

Ánægjulegt að heyra að dagur í gær hafi verið betri. Vinna tíma og orku fyrir morgundaginn. Gangi ykkur sem best. Hugsum mikið til ykkar. knús og kossar frá Asu C og Co

Sunna og Magnús said...

Risaknús á ykkur hetjurnar! Við hugsum mikið til ykkar.

kram
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Gott að vita að dagurinn hafi verið betri þið eruð sko algjörar hetjur:-)
Bestu kveðjur yfir hafið
Inga Huld og Siggi
p.s. flott mynd af þeim félögum

Allý said...

Svo gott að geta fylgst með ykkur og séð myndir!Hugsa til ykkar allan daginn og vona að allt gangi vel! Gangi ykkur rosalega vel og risaknús á ykkur ;*

Allý

Anonymous said...

Hann er alveg ótrúlegur hann Björgvin. Gott að dagurinn var betri. Koss og knús frá okkur, hugsum mikið til ykkar. Maja, Matti og litla ljúf

Anonymous said...

HæHæ..... Frábært að fá fréttir af flottasta töffarnum mínum :) Segðu honum að Aggi frændi biður að heilsa honum :)Svo þegar hann kemur heim þá ætlum við að leika.........

Vonandi að allt gangi vel
kv.Svölutjörn 1

Anonymous said...

vona að þetta sé allt að koma og Björgvin Arnar komist sem fyrst heim til ömmu aftur :) - hann er meira krúttið. Farðu vel með þig vinkona - dugleg eins og alltaf. Gangi ykkur sem allra best á morgun. Knús og kossar. Ragga

Anonymous said...

Ég vona að þér líði vel á spítalanum. Stórt stubbaknús kveðja Ragnhildur Sara 7 ára, og alexander 6
ára.

Anonymous said...

Gangi ykkur vel á morgun.... allir á Holti biðja að heilsa hetjunni litlu.. knús á ykkur
Kveðja frá Holti
Kristín

Kristrun said...

Við hugsum mikið til ykkar. Gangi ykkur sem best á morgun.

Baráttukveðjur,
Kristrún og Aggi

Sveina Birna said...

Gangi ykkur rosa vel á morgun. Gott að þú komst út í göngu í dag í sólinni. Hugsa til ykkar.
kv.
Rakel