Hvati og íþróttaálfurinn bíða eftir að Björgvin leiki með sig. Hvati er að geyma sokkana hans.
Um miðjan dag í dag þá var farið að draga úr svefnlyfi og verkjalyfjum og þá fór Björgvin að vakna smá saman og pirrast svakalega yfir því að vera í öndunarvélinni. Einnig er þá dregið úr styrk öndunarvélarinnar og hann fer að anda meira sjálfur og svo að lokum andar hann sjálfur en vélin styður við hann ef með þarf.
Hann barðist um og grét og ekkert heyrist í manni í öndunarvél. Hann bað um vatn, alltaf svo þyrstur. Svo á réttu augnabliki þá var hann rörið tekið úr honum og hann er voðalega hás til að byrja með og hóstar mikið. Biður um vatn og er mjög æstur og líður illa. Svo nær hann að slaka aðeins á og sofnar smá. Hann fékk smá skjálfta sem er spurning hvort hann sé í fráhvörfum af morfíninu, hjúkrunarkonan ætlaði að tala við læknana um það.
Það er mikill léttir að hann sé kominn úr öndunarvélinni, það er alltaf frekar stressandi ferli og erfitt að horfa á hann ganga í gegnum þetta og von um að honum gangi vel að anda sjálfur. Þau voru alveg hissa á hvað hann var duglegur og hvað öll gildi voru miklu betri en þegar hann var í öndunarvélinni. Harðjaxlinn minn! :)
Við eigum eftir að heyra um næstu skref en það er verið að skoða allar niðurstöður betur og gera áætlun til að finna út úr þessu með lungnavandamálin hans og súrefnisþörfina.
Harðjaxlakveðja frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
11 comments:
Harðjaxlar eruð þið, svo mikið er víst!
baráttukveðja, Bjarki
Ójá, sammála sídasta rædumanni!
Knús, Nína.
Gott að það gekk vel að losna við öndunarvélina :)
þið eruð hetjur
Kv.
Svava, Aggi, Hulda María og lilli
Baráttukveðja til ykkar harðjaxlana og knús til ykkar. Kv. Hólmar
Baráttukveðjur til ykkar, þið eruð algjörar hetjur
knús á litla harðjaxlinn þinn
kv
Heiðrún og co.
þið eruð allt í senn, hörkutól, hetjur og harðjaxlar!
Gangi ykkur vel með næstu skref.
Baráttukveðja,
Hrannar
Endalaust duglegur alltaf hreint!
Kv. úr Kef,
Hrund og co
Mikið mikið gott hjá hetjunni
og gott að heyra að skynsemin ræður og engir óþarfa sénsar teknir :)
Hann er ótrúlegur þessi drengur að að vera komin úr vélinni og allt gangi vel :)
Knús Ester og co
Gangi ykkur vel og barattukveðjur fra öllum a svölutjörn 49
Hann er svo mikil hetja hann Björgvin og gangi ykkur vel með framhaldið.Hulda frænka
Þetta sýnist mér allt vera að koma þó svo mjög hægt gangi, en mest um vert er að vera bjartsýn og treysta á læknana. Þið eruð með þá bestu, Guði sé lof.
Þúsund kossar til ykkar beggja frá Olg´ömmu <3
Post a Comment