Annars eru læknarnir ánægðir með aðgerðina og hvernig hann er að standa sig eftir hana. Hann hefur ekki þurft á neinum auka lyfjum að halda t.d. til að styðja við hjartað hans. Er bara á svefn og verkjalyfjum ásamt blóðþynningarlyfi og sýklalyfjum.
Björgvin fékk reyndar 39,5 stiga hita í morgun en hvítu blóðkornin eru á niðurleið og því halda læknarnir að þetta sé bara viðbrögð líkamans við svona inngripi. Það var tekin röntgen mynd af lungunum og voru þau dálítið blaut svo að hann fékk auka vatnslosandi lyf til að græja það.
Nú er spennan öll varðandi að koma honum úr öndunarvélinni og hann verður ennþá með slöngur út úr brjóstholinu fyrir vökva og blóð eftir aðgerðina. Við erum kvíðin fyrir því að hann verði vakandi með allt þetta dót í sér. Hann er nógu gamall til að verða hræddur en ekki nógu gamall til að útskýra allt þetta fyrir honum.
Á morgun er næsti stóri dagur, krossum fingur og biðjum að allt fari vel! :)
Kveðja frá okkur í sólinni (loksins!) í Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
9 comments:
Svo gott að það sé komið eitt skref í rétta átt!!! Sendi ykkur meiri sól og hita héðan hinumegin stóra sundsins ;) Hugsa mikið til ykkar frænkudísin mín - óska þess að yndislegi sterki frændi minn nái sér fljótt og vel eftir þessa stóru aðgerð!
Elsku kallinn okkar, vid hugsum hlytt til hans og krossum fingur. Thetta verdur eflaust ekki svo mikid fyrir thennan dugleg strák!
Kv Nina og co.
Loksins kom sólin, greinilega bjartari tíð framundan :)
Gott að allt er á uppleið og hann Björgvin Arnar sannar sko hvað eftir annað að margur er knár þótt hann sé smár!!
súperknús Dagbjört og co :)
Krossum fingur með ykkur! Vonandi heldur sólin áfram að skína, inni og úti.
Risaknús
Sunna og Magnús
Elsku þið
Svo gott að heyra að aðgerðin hafi gengið svona vel og ég vona heitt og innilega að komandi stundir gangi einnig svona vel. Eins og best verður á kosið!!
Stórt og mikið knús til ykkar!!
Gangi ykkur sem allrabest í dag!
Drengurinn hefur barist svo hetjulega og það er ekkert að fara að breytast, hann á eftir að rúlla þessu upp...
Góðir hlutir gerast hægt :)
Eins og ávallt er hugurinn hjá ykkur og stríður straumur af jákvæðri orku fylgir með.
Knús,
Hrannar
Takk fyrir allar upplýsingarnar - það verður líka gaman fyrir Björgvin Arnar að lesa þessar færslur þegar hann verður fullorðinn- sjá þvílíkur kraftaverkakarl hann var sem barn!!! knús yfir hafið, sigga maja og co.
Elsku Ásdís og Björgvin, það er ekki að ég hafi gleymt ykkur eða hætt að fylgst með þó ég hafi ekki sent nein comment. Er alltaf með hugann hjá ykkur og bið fyrir ykkur að allt gangi vel og Björgvin nái sér sem fyrst. Þá vil ég þakka fyrir að fá að heyra í ykkur í vikunni það gladdi mitt gamla hjarta óstjórnlega:) kveðja Asa C og Co
Elsku Ásdís mín og Björgvin Atli,
Ég sendi ykkur hetjunum allar mína jákvæðu strauma og vona að þetta gangi vel. Viðurkenni að ég er hérna með tárin í augunum yfir æðruleysi ykkar, dugnaði og krafti. Kveðja Sveina
Post a Comment