Við fengum niðurstöðuna úr lungnaskannanum sem hann fór í í gær. Þar var verið að mæla blóðflæði í báðum lungum og einnig loftflæðið. Í heilbrigðum lungum þá flæðir 50% af blóði í vinstra lungað og hin 50% í hægra lungað. Þetta á líka um loftflæðið. Þá erum við komin að niðurstöðunum:
Loftstreymið vinstra megin er 38% og hægra megin 62%.
Blóðflæðið vinstra megin er 26% og hægra megin 74%.
Nú þarf að finna út úr þessu, hvað er að valda þessu og hjartaþræðingin mun leiða eitthvað í ljós.
Það var tekin röntgen mynd í dag og voru lungun ennþá smá blaut svo að Björgvin fékk auka vatnslosandi skammt í æð til að vera í sínu besta formi.
Það kom svæfingalæknir að fá undirskriftir og fullt af læknum til að hlusta hann og skoða, þetta er bara eins og umferðamiðstöðin, sérfræðingarnir streyma úr öllum áttum.
Björgvin er farinn að pikka upp enskuna og segir Thank you :)
Jæja það er best að koma sér í háttinn til að vera í góðu formi á morgun, stór dagur og bindum við miklar vonir við að þetta gangi vel og að við fáum einhver svör. Nú er bara að treysta á guð og lukkuna og reyndar þessa sérfræðinga, þeir hljóma mjög traustvekjandi og nú er bara að láta verkin tala!
Kveðja frá okkur,
Ásdís og Björgvin
16 comments:
Jæja þá er amk komið eitthvað í ljós og vonandi geta þeir lagað hetjuna okkar á morgun.
Rosalega ertu dugleg Ásdís mín og þið bæði.
Knús og kram
Ester og co.
Kvitt og knús hetjurnar mínar.
Kv. Nina og co.
Baráttukveðjur frá Svölutjörn 1 :) Þið eruð algjörar HETJUR :)ÁFRAM BJÖRGVIN FRÆNDI
Hugsa til ykkar kæru mæðgin. Gangi ykkur rosa vel!
Kv. Hrund og fjölsk.
Hugsa til ykkar, gangi ykkur vel
kv.
Margrét H
Gangi ykkur sem allrabest! Hugsa til ykkar og sendi góða strauma.
Knús til ykkar.
Kv,
Hrannar
Gangi ykkur vel í dag! Vonandi finnst einföld og góð skýring á þessu öllu saman í dag. Hugur minn er hjá ykkur! Heia Björgvin!!!!!!!!!
Knús Dagbjört og co
Elsku Ásdís og Björgvin,
vonandi gengur þetta vel í dag og að það fáist einhver svör.
Sendum ykkur knús frá Norge,
María & Benni
þið yndislegu hetjur, gangi ykkur vel, við munum hugsa til ykkar og senda ykkur góða strauma
knús á ykkur
Heiðrún og co.
gangi ykkur rosalega vel í dag elsku Ásdís mín. knús og kossar, maja og co.
Kvitt frá mér elsku hetjur. Gott að sýkingin sé farin niður, engar svona auka truflanir takk!
kveðja, Bjarki
Heja Björgvin og heja Ásdís og heja læknar!!
Gangi ykkur súpervel, við erum alltaf með hugann hjá ykkur!
Risaknús frá Stokkhólmi
Hugur okkar er hjá ykkur, gangi ykkur vel. kv. kennarar á Holti.
Maður vonar sannarlega að þið fáið einhvern botn í þetta. Það er seigt í Björgvini litla, hann er augljóslega búinn að standa sig frábærlega og mun standa uppi sem sigurvegari! Kveðja,
Magnús
Gangi ykkur vel kæru mæðgin:-)
Kv. Sandra, Silja Mist og Karen Ólöf
Hugsum til ykkar og sendum orkumiklar baráttukveðjur
Kær kveðja
Svanhildur og co lc
Post a Comment