Thursday, May 5, 2011

Dagur 3 í Boston - Hjartaþræðing í fyrramálið

Björgvin er hressari af sýkingunni/flensunni, CRP 70 og hvítu blóðkornin 10 þús þannig að sýkingin er að fara. En hann er með mikinn hósta ennþá en ekkert til að fresta hjartaþræðingunni.

Við fengum niðurstöðuna úr lungnaskannanum sem hann fór í í gær. Þar var verið að mæla blóðflæði í báðum lungum og einnig loftflæðið. Í heilbrigðum lungum þá flæðir 50% af blóði í vinstra lungað og hin 50% í hægra lungað. Þetta á líka um loftflæðið. Þá erum við komin að niðurstöðunum:

Loftstreymið vinstra megin er 38% og hægra megin 62%.
Blóðflæðið vinstra megin er 26% og hægra megin 74%.

Nú þarf að finna út úr þessu, hvað er að valda þessu og hjartaþræðingin mun leiða eitthvað í ljós.


Það var tekin röntgen mynd í dag og voru lungun ennþá smá blaut svo að Björgvin fékk auka vatnslosandi skammt í æð til að vera í sínu besta formi.

Það kom svæfingalæknir að fá undirskriftir og fullt af læknum til að hlusta hann og skoða, þetta er bara eins og umferðamiðstöðin, sérfræðingarnir streyma úr öllum áttum.

Björgvin er farinn að pikka upp enskuna og segir Thank you :)

Jæja það er best að koma sér í háttinn til að vera í góðu formi á morgun, stór dagur og bindum við miklar vonir við að þetta gangi vel og að við fáum einhver svör. Nú er bara að treysta á guð og lukkuna og reyndar þessa sérfræðinga, þeir hljóma mjög traustvekjandi og nú er bara að láta verkin tala!

Kveðja frá okkur,
Ásdís og Björgvin

16 comments:

Anonymous said...

Jæja þá er amk komið eitthvað í ljós og vonandi geta þeir lagað hetjuna okkar á morgun.

Rosalega ertu dugleg Ásdís mín og þið bæði.

Knús og kram
Ester og co.

Anonymous said...

Kvitt og knús hetjurnar mínar.
Kv. Nina og co.

Anonymous said...

Baráttukveðjur frá Svölutjörn 1 :) Þið eruð algjörar HETJUR :)ÁFRAM BJÖRGVIN FRÆNDI

Anonymous said...

Hugsa til ykkar kæru mæðgin. Gangi ykkur rosa vel!
Kv. Hrund og fjölsk.

Anonymous said...

Hugsa til ykkar, gangi ykkur vel
kv.
Margrét H

Anonymous said...

Gangi ykkur sem allrabest! Hugsa til ykkar og sendi góða strauma.
Knús til ykkar.

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Gangi ykkur vel í dag! Vonandi finnst einföld og góð skýring á þessu öllu saman í dag. Hugur minn er hjá ykkur! Heia Björgvin!!!!!!!!!
Knús Dagbjört og co

Anonymous said...

Elsku Ásdís og Björgvin,
vonandi gengur þetta vel í dag og að það fáist einhver svör.
Sendum ykkur knús frá Norge,
María & Benni

Anonymous said...

þið yndislegu hetjur, gangi ykkur vel, við munum hugsa til ykkar og senda ykkur góða strauma
knús á ykkur
Heiðrún og co.

Anonymous said...

gangi ykkur rosalega vel í dag elsku Ásdís mín. knús og kossar, maja og co.

Anonymous said...

Kvitt frá mér elsku hetjur. Gott að sýkingin sé farin niður, engar svona auka truflanir takk!

kveðja, Bjarki

Sunna og Magnús said...

Heja Björgvin og heja Ásdís og heja læknar!!
Gangi ykkur súpervel, við erum alltaf með hugann hjá ykkur!

Risaknús frá Stokkhólmi

Anonymous said...

Hugur okkar er hjá ykkur, gangi ykkur vel. kv. kennarar á Holti.

Unknown said...

Maður vonar sannarlega að þið fáið einhvern botn í þetta. Það er seigt í Björgvini litla, hann er augljóslega búinn að standa sig frábærlega og mun standa uppi sem sigurvegari! Kveðja,
Magnús

Anonymous said...

Gangi ykkur vel kæru mæðgin:-)
Kv. Sandra, Silja Mist og Karen Ólöf

Anonymous said...

Hugsum til ykkar og sendum orkumiklar baráttukveðjur
Kær kveðja
Svanhildur og co lc