Friday, May 27, 2011

Dagur 25 í Boston - Episodes komin aftur

Í gærkvöldi byrjaði Björgvin að fá köstin aftur á klukkutíma fresti og í voru þau í alla nótt. Í dag voru þau á klukkutíma fresti til eins og hálfs tíma fresti. Þetta er tengt streitu og einnig kannski tengt bólgum í öndunarvegi.

En þrátt fyrir köstin þá gerðist margt gott í dag, hann losnaði við hina slönguna úr brjóstholinu og einn legg sem var í vinstri fæti. Við fórum tvisvar í röntgen á lungum og einni á hálsi. Svo kom háls nef og eyrnalæknir og skoðaði ofan í kok á honum og sá þar bólgu hjá raddböndunum sem er ástæðan fyrir hæsinu og að hann getur ekki drukkið almennilega. Hann fékk steraskammt til að reyna að slá á bólguna en samt verður að halda sterunum í lágmarki svo að skurðurinn nái að gróa almennilega.


Björgvin hefur verið sofandi næstum í allan dag en fengið köst inn á milli. Olga amma kom til okkar og var mikið gaman að sjá hana og fá hana til okkar. Það lifnaði svo aðeins yfir stráknum um kvöldið og sungum við saman og hann flautaði og sagði svo "Afi Gotti kenndi mér að flauta í gær" :) Allt sem er liðið var í gær haha.

Hann brosti fullt og gerði grín sem er mikið batamerki og þessi bros eru ómótstæðileg, svo falleg! :)

Broskveðjur frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar

18 comments:

Anonymous said...

Baráttukveðja og knús. Kv.Hólmar

Anonymous said...

Frábært að heyra að þið áttuð góðan dag þrátt fyrir þessi episodes. Gaman að þið eruð búin að fá heimsókn léttir sko alveg örugglega aðeins lundina. Yndisleg mynd af ykkur saman!!! :)
Risaknús
Dagbjört og co

Anonymous said...

Ædislegt ad sjá hann brosa :) Ég vildi ad ég væri ad koma til ykkar!

Sunna og Magnús said...

Yndislegt að sjá fallega brosið hans :)
Og þitt auðvitað ;)

Baráttuknús, við höfum fulla trú á að þetta sé allt að koma hjá ykkur
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Tek undir með Sunnu og Magga!

knús, Bjarki

Anonymous said...

Frábær mynd af ykkur :)
Vonum að köstin hverfi sem fyrst og fullt af góðum hlutum haldi áfram að banka uppá hjá ykkur, þið eigið þð svo skilið!
knús,
Hrannar

Anonymous said...

ooo hann er náttúrulega bara æðislegur og þessi mynd er æði :) núna fer þetta allt að koma
Baráttuknús
Aggi, Svava, Hulda María og Stefán Logi

Anonymous said...

þessi mynd er algjörlega dásamleg- hún fær mann til að brosa inn í hvaða dag sem er. kv. sigga maja og co.

Anonymous said...

Gaman að fara með svona fallega brosmynd frá ykkur inn í helgina:-)
Bestu kveðjur Inga Huld

Anonymous said...

þvílík hetja þessi sem þessi litli gutti er!
Yndisleg mynd, hann bræðir mann alveg með þessi augnhár:) Gangi ykkur vel, og góðir hlutir gerast hægt:)

Jóhanna B

Allý said...

Maður tárast alveg við að sjá þetta æðislega bros! Knús á ykkur, finnst alveg æðislegt að geta fylgst með ykkur hérna :*

Hólla og Sif said...

Frábært að Björgvin sé að hressast og líkjast sjálfum sér. Æðisleg mynd af ykkur báðum! Þetta bros bræðir mann algjörlega :) Kannast við svona lítil krútt sem finnst allt liðið hafa gerst í gær... Sifin er meira segja farin að tala um "í gamla daga þegar ég var lítil"...hahaha! Vona að þið komist heim sem fyrst og litla snúðnum batni fljótt og vel! Baráttukveðjur og knús frá Hóllu og Sif.

Anonymous said...

Frábært að sjá brosið hans og þitt auðvita líka Ásdís mín ;)Baráttukeðjur frá Gautaborg
Sirrý og co

Anonymous said...

Æðisleg mynd af ykkur og knús til ykkar.

Anonymous said...

Frábært að sjá að fallega brosið er komið á Björgvin, honum greinilega líður betur.
kossar og knús á ykkur
Inga Lóa

Anonymous said...

Æðisleg mynd af ykkur og gott að sjá bros hjá augnhára prinsinum. Áframhaldandi baráttukveðjur.
Ella María

Anonymous said...

Maður brosti bara allan hringinn við að sjá þessa mynd :) Þið eruð dásemd!
kveðja
Lóa

Anonymous said...

Dásamlegt að sjá þessa mynd, dásamlega sjarmatröllið.

knús á ykkur

Inga Birna og co.