En þrátt fyrir köstin þá gerðist margt gott í dag, hann losnaði við hina slönguna úr brjóstholinu og einn legg sem var í vinstri fæti. Við fórum tvisvar í röntgen á lungum og einni á hálsi. Svo kom háls nef og eyrnalæknir og skoðaði ofan í kok á honum og sá þar bólgu hjá raddböndunum sem er ástæðan fyrir hæsinu og að hann getur ekki drukkið almennilega. Hann fékk steraskammt til að reyna að slá á bólguna en samt verður að halda sterunum í lágmarki svo að skurðurinn nái að gróa almennilega.
Björgvin hefur verið sofandi næstum í allan dag en fengið köst inn á milli. Olga amma kom til okkar og var mikið gaman að sjá hana og fá hana til okkar. Það lifnaði svo aðeins yfir stráknum um kvöldið og sungum við saman og hann flautaði og sagði svo "Afi Gotti kenndi mér að flauta í gær" :) Allt sem er liðið var í gær haha.
Hann brosti fullt og gerði grín sem er mikið batamerki og þessi bros eru ómótstæðileg, svo falleg! :)
Broskveðjur frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
18 comments:
Baráttukveðja og knús. Kv.Hólmar
Frábært að heyra að þið áttuð góðan dag þrátt fyrir þessi episodes. Gaman að þið eruð búin að fá heimsókn léttir sko alveg örugglega aðeins lundina. Yndisleg mynd af ykkur saman!!! :)
Risaknús
Dagbjört og co
Ædislegt ad sjá hann brosa :) Ég vildi ad ég væri ad koma til ykkar!
Yndislegt að sjá fallega brosið hans :)
Og þitt auðvitað ;)
Baráttuknús, við höfum fulla trú á að þetta sé allt að koma hjá ykkur
Sunna og Magnús
Tek undir með Sunnu og Magga!
knús, Bjarki
Frábær mynd af ykkur :)
Vonum að köstin hverfi sem fyrst og fullt af góðum hlutum haldi áfram að banka uppá hjá ykkur, þið eigið þð svo skilið!
knús,
Hrannar
ooo hann er náttúrulega bara æðislegur og þessi mynd er æði :) núna fer þetta allt að koma
Baráttuknús
Aggi, Svava, Hulda María og Stefán Logi
þessi mynd er algjörlega dásamleg- hún fær mann til að brosa inn í hvaða dag sem er. kv. sigga maja og co.
Gaman að fara með svona fallega brosmynd frá ykkur inn í helgina:-)
Bestu kveðjur Inga Huld
þvílík hetja þessi sem þessi litli gutti er!
Yndisleg mynd, hann bræðir mann alveg með þessi augnhár:) Gangi ykkur vel, og góðir hlutir gerast hægt:)
Jóhanna B
Maður tárast alveg við að sjá þetta æðislega bros! Knús á ykkur, finnst alveg æðislegt að geta fylgst með ykkur hérna :*
Frábært að Björgvin sé að hressast og líkjast sjálfum sér. Æðisleg mynd af ykkur báðum! Þetta bros bræðir mann algjörlega :) Kannast við svona lítil krútt sem finnst allt liðið hafa gerst í gær... Sifin er meira segja farin að tala um "í gamla daga þegar ég var lítil"...hahaha! Vona að þið komist heim sem fyrst og litla snúðnum batni fljótt og vel! Baráttukveðjur og knús frá Hóllu og Sif.
Frábært að sjá brosið hans og þitt auðvita líka Ásdís mín ;)Baráttukeðjur frá Gautaborg
Sirrý og co
Æðisleg mynd af ykkur og knús til ykkar.
Frábært að sjá að fallega brosið er komið á Björgvin, honum greinilega líður betur.
kossar og knús á ykkur
Inga Lóa
Æðisleg mynd af ykkur og gott að sjá bros hjá augnhára prinsinum. Áframhaldandi baráttukveðjur.
Ella María
Maður brosti bara allan hringinn við að sjá þessa mynd :) Þið eruð dásemd!
kveðja
Lóa
Dásamlegt að sjá þessa mynd, dásamlega sjarmatröllið.
knús á ykkur
Inga Birna og co.
Post a Comment