Monday, May 2, 2011

Mætt til Boston

Nú erum við komin til Boston og erum á hótelherberginu að snæða Subway eftir ferðalagið og litli kúturinn er sofnaður, algjörlega búinn á því.

Ferðin gekk vel, alla vega stórslysalaust, það kom smá panik fyrir þegar hleðslan í súrefnisvélinni kláraðist og það tók smá stund að tengja við nýjan súrefniskút, Björgvin féll alveg í 60 í mettun og leið mjög illa. En svo lagaðist það fljótt þegar rennslið komst á. Okkur foreldrunum fannst þetta standa yfir í alltof langan tíma.

Það er vert að minnast á að í dag kl 14, þá var klukkutími í brottför upp í flugstöð, þá mældist Björgvin með 39 stiga hita og var hugsað um að hætta við ferðina, en sem betur fer var ákveðið að halda áfram skv. áæltun. Hann er með smá kvef og hnerrar en fékk sýklalyf í vöðva um leið og þetta fattaðist og vonandi mun þetta ekki tefja rannsóknirnar hér úti.

Hér eru nokkrar myndir.

Við að leggja af stað, komin upp í flugstöð að tékka okkur inn.


Því miður þá var vesen að setja inn fleiri myndir svo að ein verður að duga, so sorry.

Við verðum að fara snemma að hvíla okkur þar sem morgundagurinn verður strembinn, eigum að mæta kl hálf átta og fara í allskonar rannsóknir. Blóðprufur, blóðþynningasprauta í lærið, röntgen, lungnaflæðismynd, ómskoðun er á listanum fyrir morgundaginn svo að eitthvað sé nefnt.

Ekki er á hreinu ennþá hvort við leggjumst inn á morgun eða hinn daginn, kemur í ljós á morgun.

Engar fréttir fyrr en annað kvöld aftur :)

Ásdís og Björgvin


11 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra að þið eruð komin á leiðarenda, verðum að trúa því að fall sé fararheill. Sara var ekki sátt við að við hefðum farið í dag án hennar að hitta ykkur og ég bauð henni því að senda skilaboð meðan ég skrapp frá sem hún gerði í dag og svo þegar hún var komin uppí rúm þá var hún greinilega búin að hugsa meira um það og vildi fá að skrifa aftur skilaboð :) Gangi ykkur sem allra best á morgun og næstu daga Knús og kram frá Ester Hjalta, Söru og Alexander.

Anonymous said...

Gangi ykkur rosalega vel! Við hugsum sko til ykkar.
Kv. Nína og Kristjánar

Anonymous said...

Gangi ykkur vel með allt í dag!!

Bjarki

Anonymous said...

Gangi ykkur vel elsku Ásdís
Við munum hugsa til ykkar, knúsaðu Björgvin frá okkur
kv
Heiðrún og fjölskylda

Anonymous said...

Vonandi gengur allt sem best hjá ykkur í dag!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Sem betur fer var ekki hætt við! Hugsa til ykkar, gangi ykkur sem best!
Kv. Hrund og fjölsk.

Anonymous said...

Kæra Ásdís
Gott að þið eruð komin á áfanga stað vonandi að hitinn sé farinn og allt gangi vel. Fylgjumst með ykkur og biðjum fyrir ykkur kveðja Asa C og fjölskylda

Anonymous said...

Gangi ykkur rosa vel í dag í öllum rannsóknunum. Sendi góða strauma yfir hafið. Knús, Rakel.

Sunna og Magnús said...

Risaknús og straumar frá Sverige. Gangi ykkur vel í dag.

***
Sunna og co

Anonymous said...

Vonandi hefur allt gengið vel í dag- takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með- bestu kveðjur, Sigga Maja og co.

Linda said...

Gangi ykkur vel í Boston! Við hugsum til ykkar.

Linda, Sindri og börn