Björgvin er búinn að vera að hósta og með smá hitavellu og var ákveðið að fresta hjartaþræðingunni þangað til á fimmtudaginn. Einnig tóku þeir eftir miklum þrýstingi í hægra hluta hjartans og ákváðu þess vegna að ekki væri gott að gera berkjuspeglun og öndunarvegsrannsókn á sama tíma og hjartaþræðingin eins og áður var ákveðið. Best er að láta einn til tvo daga líða á milli til þess að hafa öryggið í fyrirrúmi.
Við erum búin að tala við ábyggilega 8 lækna í dag, plús hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk. Björgvin er mjög hvekktur, kominn á sjúkrahús sem hann þekkir ekki og allir tala skringilega og hann skilur ekki neitt. Það tekur bara á að fá að hlusta hann núna, áður fyrr var það aldrei vandamál. Hér erum við á einni biðstofunni.
Björgvin er eiginlega ekkert búinn að borða síðan í gærmorgun, bara smotterí en hann drekkur nú alltaf vel. Hann borðaði nokkra kjötbollubita áðan og drakk orkumjólk. Vonandi sefur hann vel í nótt.
Hann fékk auka vatnslosandi þar sem læknunum fannst lungun hans vera slatta blaut og svo fékk hann sýklalyf í æð til að hindra að hann sé að fá einhverja sýkingu. Við megum ekki við því og sérstaklega ekki á þessum tíma. En við erum þó komin hingað og bíðum bara þangað til að hann sé nógu hress til að fara í hjartaþræðinguna.
Hér sefur hann með Hvata, me me, voffa og íþróttaálfinn sem hann sleppur aldrei takinu á :) Það eru rólegir dagar framundan held ég, sérstök lungnamyndataka sem átti að gera í dag var frestað þangað til á morgun. En annað er búið og mun aðalmálið vera að koma Björgvini upp úr þessari flensu sem er að hrjá hann.
Nú treystum við bara á guð og lukkuna að þessir sérfræðingar geti fundið eitthvað út úr þessu öllu saman.
Takk fyrir öll kommentin og póstana kæru vinir og ættingjar.
Knús á ykkur
Ásdís og Björgvin Arnar
20 comments:
Hann er greinilega í gódum höndum.
Risaknús til ykkar!
Kv Nina og co
Hugsa mikið og vel til ykkar Ásdís mín og segi bara poj poj poj til ykkar og ég sendi ykkur allar mínar heildísir og vætti. Kossar frá okkur í Gautaborg Sirrý og co
Gangi ykkur vel. Við fylgjumst með!
Bestu kveðjur frá Stokkhólmi.
Rakel
Æjjj litli snúllinn minn! Gangi ykkur rosalega vel, ég refresh-a með stuttu millibili, hlakka svo til að heyra eitthvað.
Risaknús á ykkur
Allý
Við sendum baráttukveðjur frá Stokkhólmi.
Sindri & Linda
litla skinnið, gott að vita af ykkur með alla þessa sérfræðinga innan handar!
Hugurinn er hjá ykkur...
Knús í hús.
Kv,
Hrannar
Svakalegt prógram er búið að vera, duglegu mæðgin! Orkuknús til ykkar
Ég er viss um að hann verður fljótur að finna sig á nýjum stað sá litli.
Bjarki
Elsku Ásdís mín, við hugsum líka til ykkar og biðjum að allt fari á besta veg, risa knús frá Dóru og fjölskyldu í Cambridge
Gangi ykkur rosavel. Við fylgjumst með hérna í Libra. Bestu Librakeðjur
Elín
Gangi ykkur vel, við sendum ykkur orkustrauma og risaknús
kv
Heiðrún og co.
Hugsum til ykkar og óskum ykkur góð gengis knús og kossar Asa C og Co
Elsku Ásdís, gangi ykkur sem allra, allra, allra best. Við hugsum til ykkar og sendum ykkur okkar bestu óskir.
Knús,
Þórey Arna og co
Vona að litla hetjan okkar braggist sem fyrst - gott að vera innan um alla þessa sérfræðinga. Hugurinn er hjá ykkur - knús og koss, Ragga
Gott að prinsinn er í góðum höndum, sendum ykkur fullt af batastraumum Stubbaknús Ester og co
Ég hugsa til ykkar.
Hann er í bestum höndum og ég hef tröllatrú á drengnum þínum yndislega.
Gangi þér vel og reyndu nú að fara vel með þig, Ásdís mín.
Gangi ykkur rosalega vel. Knús og kossar og fullt af góðum straumum til ykkar.
kv. Inga Birna og co.
Koss og knús til ykkar! Sendum batnaðarstrauma héðan, vonum innilega að hann losni fljótt við hitann!
Bestu kveðjur frá okkur í Selvaðinu:)
þið rúllið þessu upp..... hann hefur nú gert annað eins þessi kraftaverkadrengur! Megi heilladísirnar vaka yfir ykkur. knús frá okkur öllum, Sigga Maja
Þú þekkir mig ekki neitt en einhverntíman villtist ég inná þessa síðu og hef kíkt nokkrum sinnum síðan. Vona að það sé í lagi :) Ákvað að kvitta í þetta skiptið og senda ykkur baráttukveðjur! Vonandi gengur allt vel þarna úti!
Kv.
Kolbrún Helga Pálsdóttir
Knús og kossar og allar góðar hugsanir fljúga yfir til ykkar. Gangi ykkur vel, farið verl með ykkur. Kær kveðja Kristín Amelía.
Post a Comment