Við fengum taugasérfræðinga til okkar sem fengu alla söguna og gerðu allskonar próf á honum. Þeir ætla að setja hann í heilalínurit á morgun til að rannsaka þetta betur.
Einnig var tekin röntgen mynd af lungunum og átti hann að fara í röntgen mynd af hálsinum til að athuga hvort hann væri með ákveðna barkasýkingu en við komumst ekki í það vegna ástandsins í dag, reynum aftur á morgun. En hóstinn er betri en dálítið slím er í honum samt sem áður og lungun líta ágætlega út.
Um leið og einhver kemur inn í herbergið þá segir Björgvin "Nei nei ekki blóðprufu" og honum fannst ágætt ráð að fela sig bara. Einnig hefur hann notað orðið "hræðilegt". Já það er mikið lagt á lítinn kropp. Þannig að hann fær allt sem hann vill þessa dagana, í dag vildi hann fá sleikjó, og vildi fá þrjú stykki, ekki vandamálið! :)
Við fengum engin svör eða áætlun í dag, hún mun ekki liggja fyrir fyrr en í lok vikunnar held ég en við áttum flug heim á morgun og lét ég seinka flugmiðunum og einnig fengum við inni í húsi sem spítalinn rekur og er ódýrara en hótel. Við flytjum þangað á fimmtudaginn og eigum pláss þar næstu 3 vikurnar ef þörf er á.
Fyrir tveimur árum þá fékk Björgvin tvö svona köst rétt eftir aðgerð á öndunarveginum í Stokkhólmi svo að hann á þetta til þegar mikið álag er á honum, vonandi er þetta bara vegna álags á líkamann en ekkert annað sem er í gangi. Í dag þá tókum við köstin upp á video sem gerði læknana mjög glaða og gerði það að verkum að allir með tölu fengu að sjá hvernig þau litu út.
Þessi dagur tók á og fyrst um morguninn þá varð ég mjög hrædd um hann þegar þetta kom fyrir aftur og aftur. En svo fór ég að róast þegar ég komst að því að þetta eigi ekki að vera hættulegt og líður hjá en vert að rannsaka vel. Ég verð að viðurkenna að þjóðarstoltið rauk upp þegar við komumst áfram í Evróvísjón og það var kærkomið á þessum degi, en það er um að gera að halda í jákvæðnina og halda áfram fyrir strákinn sinn. Hann er náttúrulega hetjan hér og er algjört gull.
Evróvísjónkveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar
21 comments:
Thid erud svo dugleg ad thad hálfa væri nóg. Mikid lagt á lítinn kropp.
Kv Nina
Skil vel að hann vilji bara fela sig þegar einhver kemur inn í herbergið hans ég myndi sko gera það líka :) Já það er sko mikið sem lagt er á lítinn kropp!!! Hér segjum við sko ÁFRAM BJÖRGVIN ARNAR!!! :)
Knús Dagbjört og co
Var að lesa þetta aftur yfir nú þegar ég er komin í vinnuna, maður kíkir sko oft á dag! Mjög skiljanlegt að hann feli sig þegar einhver kemur inn! Hann er sko algjör gull þessi drengur og hans er mikið saknað hér í Sviss, Kristján Logi talar mikið um það að koma heimsækja ykkur eða að fá ykkur hingað í heimsókn.
Kv. Nína
Úff, meira sem er lagt á ykkur :(
Við vildum við gætum gefið ykkur risaknús, vonandi þurfið þið ekki að vera í heilar þrjár vikur í viðbót.
kram
Sunna og Magnús
Dugnaðarforkar! Hugsa mikið til ykkar. Takk aftur fyrir ítarlegar og góðar bloggfærslur og allar myndirnar.
Kv. Hrund
Björgvin er bara SNILLINGUR nr. EITT ef ég þekki hann rétt mun hann toppa allt þetta saman með trompi. Hugsum mikið til ykkar, Standið ykkur eins og HETJUR
kv.Svölutjörn 1
Það er mikið lagt á litlu hetjuna. Skil vel að hann sé orðinn leiður á það sé alltaf verið að skoða hann. Vonandi voru þessu köst tilfallandi og allt verður á uppleið í framhaldinu. Gangi ykkur vel, knús á hetjuna
kveðja
Heiðrún og co
Thid erud baedi algjörar hetjur, Ásdís. Björgvin litli fyrir ad vera svona duglegur thrátt fyrir mikid heilsuleysi og thú fyrir ad stydja hann svona vel.
Bestu kvedjur
Linda & Sindri
Risaknús á ykkur :*:* Jii hvað mig langar að stökkva yfir hafið og rembingsknúsa ykkur! Mikill söknuður hér og reyni að fylgjast grannt með ykkur. Bið að heilsa og vonandi fer að koma góð niðurstaða á öllu saman ;*
Þetta er svo ótrúlega duglegur drengur sem þið eigið - gott hjá honum að fela sig bara fyrir þessu liði sem er alltaf að pota og stinga í hann :-)
Baráttukveðjur
Ella María
Gangi ykkur vel, við hugsum til ykkar og sendum orku :)
Sigga
Úff, þetta er meiri rússibanaferðin og ekki sú fyrsta!
Vonandi líður þetta bara hjá eins og síðast.
Hann er sko algjör snillingur! :)
Bjarki
Sælar hetjur, takk fyrir gott blogg, það er ótrúlegt hvað lagt er á lítinn kropp, en við höfum trú á að Björgvin standi uppi sem sigurvegari í lokin og þetta muni hjálpa honum. Skiljum vel að hann sé leiðum á öllu þessu poti og rannsóknum. Anna Mjöll biður sérstaklega að heilsa litla frænda sínum og saknar hans og óskar honum alls hins besta og vonar að hann komi sem fyrst heim. kveðja frá okkur öllum Asa C og Co
Tek undir með systur minni Ásdís mín, takk fyrir bloggið, ég fylgist óspart með ykkur, bæði hér á blogginu og hjá Atla. Ótrúlegt hvað þú ert dugleg og jákvæð þrátt fyrir mikla streytu. Maður fær fyrir hjartað að sjá myndina sem þú tókst af honum þegar hann var að fela sig undir teppinu, litla skinnið. Þið eruð algjörar hetjur.
Þúsund kossar og baráttukveðjur frá Olg´ömmu
Áfram Björgvin Arnar! :-)
Baráttukveðjur
Þóra Jóhanna
Elsku litli kall! Auðvitað skellir maður bara teppinu yfir sig:)
Maður á ekki orð hversu ótrúlega mögnuð þið eruð! Sendum allar okkar baráttukveðjur xxx
Það mæðir mikið á litlu hetjunni, vonandi að þessi köst séu tímabundin!
Þið standið ykkur ekkert smá vel, takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.
Kv,
Hrannar
Kvitt, kvitt- hugsum mikið til ykkar og sendum heita strauma yfir hafið......Vonandi kemur áætlun um framhaldið sem fyrst. Kv. sigga maja og co
Hér kemur gámur fullur af orku og jákvæðni ykkur til handa. Notist eftir þörfum.
Finn svo til með ykkur að þurfa að standa í þessum aðstæðum en veit þó svo vel að það er margt í þessu lífi sem við veljum ekki og við verðum bara að takast á við. Þið standið ykkur svo ótrúlega vel og eigið einlæga aðdáun mína fyrir vikið.
Gangi ykkur vel kæru vinir!!
Kæra Ásdís,
maður veit eiginlega ekki hvað annað maður getur sagt annað en það sem öllum finnst um ykkur, s.s. að þið eruð alheimshetjur!! Mig langaði bara til að skrifa nokkrar línur bara til að vera alveg örugg um að þú vitir að ég er með ykkur í anda og bið fyrir ykkur öllum (læknunum líka).
Yndislegt hvað þú ert dugleg að blogga, það er alveg ómetanlegt að fá að fylgjast svona með ykkur.
Þúsund hugs og kossar frá Olg´ömmu
En svo þú fáir nú líka smá gossip; þá er ég búin að bjóða nokkrum íslenskum kerlingum til mín á laugardagskvölið í Eurovision Party, fann meira að segja hamborgarahrygg í einni búð hér!!!!
Svo er ég búin að vera með foreldra Roberto´s í heimsókn síðan á sunnudaginn en sem betur fer eru þau að fara á eftir, ekki það að þetta er ágætisfólk en ég held þú getir samt ýmindað þér.....
Man ekki eftir meiru í bili.
Love you!
Olga
Post a Comment