Tuesday, May 10, 2011

Dagur 8 í Boston - Lausn í sjónmáli?

Þegar ég mætti á spítalann í morgun þá brá mér að sjá framan í strákinn minn í fyrsta skiptið í 4 mánuði. Hann var án súrefnisslöngunnar og var að metta 95 (af hundraði). Hann hefur verið með mjög blaut lungu og þegar þeir ná að "vinda" þau þá nær hann að metta svona vel sjálfur. Það var svo yndislegt að sjá hann og hann var svo ánægður að vera laus við slönguna. (Hann þurfti svo á súrefni að halda seinna um dagin og var mjög sár að þurfa að fá slönguna aftur)

Reyndar er hann með hósta sem er ljótur, þ.e. hann er eins og hátt gelt. Þau halda að það séu viðbrögð við að hann hætti á sterunum og sé með einhverjar bólgur eftir öndunarvélina í hálsinum. Það var ákveðið að setja hann á 3 skammta af sterum á 8 tíma fresti. Okkur fannst hóstinn að vera ekki eins oft en hljóðið er eins. Vonandi verður þetta betra á morgun.

Það var tekin röntgen mynd af lungunum og voru þau aðeins blautari svo að hann fékk vatnslosandi í æð fyrir svefninn.

























Við fórum á rúntinn í dag og lékum okkur í leikstofunni. Honum fannst það svo gaman, sérstaklega gaman að leika með lestirnar.

Julia sem er aðstoðarmanneskja Dr. Catherine Allan kom og talaði við okkur í dag. Hún sagði að Catherine hefði talað við 3 góða og reynda lækna um aðstæðurnar og niðurstöðuna úr hjartaþræðingunni. Allir þrír sögðu það sama, ótrúlegt þar sem það var talað við þá í sitthvoru lagi.

En þeir sögðu að þeir teldu best að fjarlæga neðra hluta vinstra lungans sem er sýktur. Vinstra lungað er skipt í tvö hólf og er neðri hlutinn 40% af heildinni. Sá hluti er búinn að vera með miklum sýkingum og er vefurinn orðinn mjög þykkur, eins og að örvefur hafi safnast, og þegar hann andar inn og út þá hreyfist þessi hluti ekki eins og eðlilegi vefurinn, þ.e. er miklu stífari. Hann er í raun ónothæfur og væri betra að vera án hans og gæti þá efri hluti lungans vaxið þess í stað þar sem Björgvin er svo ungur.

Það er ekki alveg búið að ákveða þetta þar sem Del Nido (skurðlæknirinn hans Björgvins) kemur ekki fyrr en í kvöld eða á morgun, hann er í ferðalagi. Þegar það næst í hann, sem verður vonandi á morgun, þá verður áætlunin staðfest.

Ef þetta verður raunin þá mun þetta verða gert þegar Björgvin er búinn að jafna sig á hóstanum, þ.e. í byrjun næstu viku og svo mun taka alla vega viku að jafna sig eftir svona aðgerð. Aðgerðin er stór og mikil en þó ekki eins stór og mikil og hjartaaðgerð.

En mikið var ég fegin að vita að þeir eru að skoða málin og eru að hugsa um mögulegar lausnir að hans vandamálum.

Kveðja frá Boston
Ásdís og Björgvin Arnar

19 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra að þeir séu mögulega búnir að finna leið til að bæta ástandið á hetjunni ykkar :-) Gangi ykkur sem allra best með framhaldið...
Kv.
Ella María

Anonymous said...

Gódar fréttir! Eg trúi ad thad hafi verid frábært ad sjá hann án slöngunnar.
Kv Nina

Anonymous said...

Gott að heyra að það er lausn í sjónmáli, þó það þýði stóra aðgerð. En Björgvin er nú svo ótrúlega duglegur að hann fer létt með það :)
Knús Dagbjört og co

Sunna og Magnús said...

Mikið var nú yndislegt að lesa fyrirsögn dagsins :)

Við vonum sannarlega að það sé lausn í sjónmáli og höldum áfram að senda ykkur alla okkar bestu strauma.

knús
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Frábært að heyra!
Það er vonandi að þið getið farið að loka þessum kafla og byrjað næsta þar sem strákurinn fær að vaxa og dafna :)
Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Frábært að sjá að hann gat verið laus við súrefnið og að lausn sé í sjónmáli. Gangi ykkur vel með framhaldið. Knús á hetjuna okkar
kveðja
Heiðrún og co.

Anonymous said...

Gott að heyra... Við vonum svo sannarlega að þetta gangi vel og Björgvin fái lausn... Frábært að losna við súrefnið og sjá framan í þennan litla sæta snáða :)
Baráttukveðjur yfir hafið
kveðja frá Holti

Anonymous said...

Frábærar fréttir! Vonandi ganga næstu dagar eins vel.

Kær kveðja,
Hrafn

Anonymous said...

Ahhh mar fær alveg klökk af gleði loksins einhverjar nýjar upplýsingar sem gætu hjálpað honum og að mettunin hafi verið góð í nokkra tíma í gær bara algjör snilld.
Knús til ykkar - gott að fá fréttirnar :)
Kveðja Ester

Anonymous said...

Gangi ykkur sem allra best með framhaldið. Gott að Björgvin fékk aðeins að vera laus við slönguna - þetta fer vonandi allt að koma - hugsum til ykkar :)
Knús og kossar, Ragga

Anonymous said...

æðislegt að heyra að verið sé að leita lausna og að hann hafi náð að metta svona vel sjálfur. Þið eruð svo dugleg. koss og knús,maja og co.

Anonymous said...

dásamlegt að lesa svona góða færslu - takk fyrir að vera svona dugleg að leyfa okkur að fylgjast með...risaknús, sigga maja og co.

Anonymous said...

Gott að heyra að hann hafi fengið smá pásu frá slöngunni, þó ekki væri það að fullu að þessu sinni, en það kemur :) Þá er gott að þrír læknar skulu komast að sömu niðurstöðu þó að hann þurfi að fara í þessa aðgerð og vonum og höfum trú á því besta. Höldum áfram að biðja fyrir ykkur og sendum okkar bestur kveðjur Asa C og Co

Linda Karen said...

Elsku Ásdís og Björgvin!
Takk fyrir greinagóða pistla! Ég var að lesa gegnum Bostonævintýrið í morgun og sé að þið eruð að ganga í gegnum margt og mikið og vonandi jákvætt þegar allt verður á botni hvolft !!! Það er ekki laust við að ég tárast þegar ég les um allt sem lagt er á litla manninn og mömmu hans!! Það er eins gott að þið eruð gerð úr stáli!
Við sendum ykkur jákvæðar hugsanir og krafta yfir hafið og höldum áfram að fylgjast með gangi mála.
Risa knús til ykkar frá okkur hér í sumarblíðunni í Stokkholmi

Solla said...

nafnið á fréttum dagsins var óneitanlega gott að lesa og gott að heyra að þeir sjái fyrir sér lausnir fyrir litla krúttið. Dugleg ert þú Ásdís að fara svo út að hlaupa inn á milli. Eins og oft hefur komið fram hér og allir sem þekkja þig vita þá ertu alveg ótrúleg manneskja, alltaf svo sterk og dugleg og Björgvin er ótrúlega heppinn með mömmu. Hlakka til að fá ykkur heim þegar þetta verður búið og þið komið heim í íslanska sumarið.

Anonymous said...

Dásamlegt að fá að fylgjast með, og sjá að það er laus í sjónmáli. Gangi ykkur rosalega vel. Knús á ykkur.

Inga Birna og co.

Unknown said...

Frábært að möguleg lausn sé í sjónmáli - maður vonar það besta fyrir ykkar hönd! Kv. Magnús

Anonymous said...

Gott að það sé búið að losa vökvan úr lungunum....... Haldið áfram að vera dugleg og minntu litla að Aggi frændi sé að bíða eftir honum ;) Baráttukveðjur frá Svölutjörn

Anonymous said...

Yndislegt að heyra þessar fréttir. Ég trúi því að litli kútur hafi verið glaður að losna við slönguna í smá tíma og að það sé að verða til plan um næstu skref. Nú finna þeir lausnina. Ég er búin að lesa þetta allt fyrir mömmu líka og henni fannst best að Björgvin væri farinn að segja brandara, hún var svo forvitin að vita hvaða brandarar það hefðu verið :)
Bestu kveðjur,
Rakel