Monday, May 9, 2011

Dagur 7 í Boston - Allur að koma til

Björgvin var nú ekki líkur sjálfum sér í gær en í dag þá voru lyfin greinilega á bak og burt og hann var kominn í staðinn. Hann var miklu hressari í dag og sagði brandara eins og honum væri borgað fyrir það og hló, já þessi bros hans eru ómetanleg!

Nóttin var ekkert svakalega hressandi fyrir mömmuna, við vorum með herbergisfélaga sem grét mjög mikið í nótt og svo vakti Björgvin í 4 tíma þar sem hann var búinn að snúa við sólarhringnum, þannig að gamla er mjög þreytt núna og ætlar að henda sér á koddan fljótlega.

Dagurinn var rólegur og er eins og allir læknar séu í helgarfríi og frekar rólegt yfir öllu. Vonandi munum við heyra eitthvað á morgun. Við notuðum daginn í að þvo þvottinn okkar og að rúnta um spítalann til að hressa strákinn aðeins við. Honum fannst þetta mjög gaman, algjört sport að fara í lyftuna og svo mikið að sjá.


Hérna sofa vinirnir eftir daginn, þreyttir eftir annasaman dag :)

Nú koma læknarnir vonandi endurnærðir til vinnu á morgun og segja okkur hver næstu skref eru.

Góða nótt,
Ásdís og Björgvin Arnar

18 comments:

Sunna og Magnús said...

Takk elsku Ásdís fyrir að vera svona dugleg að leyfa okkur að fylgjast með. Við hugsum endalaust mikið til ykkar og sendum alla okkar bestu strauma.

kram
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Gott að byrja daginn á blogginu frá og frétta að Björgvin er orðinn miklu betri og byrjaður að segja brandara og "rúnta" um sjúkrahúsið:-)
Bestu batakveðjur til ykkar frá Ingu Huld og Sigga

Anonymous said...

Það væri nú gaman að heyra einn og einn brandara frá honum, hann er fyndinn eins og vinkona hans, he he he.
Knús og koss, þið eruð ekkert smá dugleg.
Kv. Nína

Anonymous said...

Gott að heyra að hann er orðinn svona hress :) Ég er viss um að læknarnir séu svo endurnærð og uppfull af hugmyndum til að hjálpa Björgvini eftir gott helgarfrí. Þið sláið öll met í hetjudáð!!
Risaknús :)
Dagbjört

Anonymous said...

Kæra Ásdís, gott að fá að fylgjast með ykkur. Björgvin er algjörhetja að fara í gegnum þetta allt og ánægjulegt að heyra að hann er farinn að segja brandara og rúnta um, sem sýnir að hann er að hressast eftir allt þetta pikk og pot og annað sem gert hefur verið. Bestu óskir og kveðju Asa C og Co :)

Anonymous said...

Nú fara læknarnir að hugsa í lausnum og sýna snilli sína!

kveðja, Bjarki

Bylgja said...

Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með Ásdís mín:) Hugsum mikið til ykkar!
Knús og kossar til ykkar!

Anonymous said...

Frábært að þetta sé að þokast í rétta átt. Vonandi verður áframhald á því!

Kveðja,
Hrafn

Anonymous said...

Flott að sjá að strákurinn sé að koma til.

Gangi ykkur sem allra best.

Þú ættir kannski að stinga upp á scrum fundi.. :)

kv
Stebbi@libra

Elin said...

Gott að heyra að hann sé að hressast og brandarast. Við hugsum til ykkar á hverjum degi.
Librakveðjur
Elín

Allý said...

Jii hvað það er gott að heyra að hann sé allur að koma til! Líka ekki annað í borði þar sem hann er mesta hetja sem ég veit um! En Knús á ykkur og sérstakur knús á snúllann minn sem ég sakna alveg roooosalega mikið ;*;*;*

Anonymous said...

Gott að heyra hvað hann er duglegur og ekki er nú leiðinlegt að fá vel valda brandara frá svona snillingi :)
Sendi góða strauma yfir hafið til ykkar!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Varð að kvitta fyrir innlitið, gott að vita að allt gengur vel. Knús á Björgvin hetju og gangi ykkur rosalega vel. Kær kveðja úr Blikatjörninni Anna

Linda said...

Þið eruð svo miklar hetjur! Litlinn brattur að segja brandara og mamman bara úti að hlaupa :-D

Hugsum til ykkar!
Linda & Sindri

Anonymous said...

Gott að þú sért farinn að viðurkenna aldurinn gamla. En gott að heyra að hann sé að braggast litli kútur. Kv.Hólmar

Anonymous said...

Hugsa til ykkar og sendi ykkur risastórt knús yfir hafið! Hanna María

Edda og Emil said...

Elsku kúturinn og elsku Ásdís mín ! Mikið rosalega standið þið ykkur vel ! Meiri hetjustrákurinn sem þú átt Ásdís mín. Hjartans þakkir fyrir að leyfa okkur að fylgjast með. Við hugsum til ykkar á hverjum degi og biðjum heitt og innilega að einhver skýring finnist hjá litla íþróttaálfinum. Megi Guð og æðri máttur fylgja ykkur í gegnum ´ferlið´ykkar. Ofurknús til ykkar yfir hafið <3

Ástarkveðjur frá Eddu og Emil Ágústi.

Óli Örn said...

Er með hjartað og hugan hjá ykkur - vildi að ég gæti verið þarna hjá ykkur í þessu ferli... Baráttu kærleikskveðja frá Noregi, Óli frændi