Björgvin borðaði ágætlega í dag og við fórum á rúntinn, horfðum á Dóru og borðuðum fullt af snakki. Björgvin talaði líka við ömmu sína og afa í dag, sagði þeim frá öllu sem hann gerði í dag og hvað hann borðaði, jú jú alveg nákvæm skýrsla gefin.
Björgvin fékk bara eitt kast í dag og var það vægt. Þannig að þau eru alveg að fjara út og það er byrjað að fækka róandi skömmtunum.
Það var frídagur hér í dag svo að á morgun þá byrjar fjörið aftur, hittum fullt af læknum og förum í kyngjurannsókn og förum í sjónmælingu hjá augnlækni.
Kær kveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar
10 comments:
Gott að heyra! (lesa :) ) Það er allt annað að sjá hann á myndinni núna, honum líður greinilega betur. Nú fer alveg örugglega að styttast í heimferðina!
Kv. Nína
Tek undir með "litlu" systir.
Kannski þið komið með sumarið með ykkur hingað á klakan?
Kveðja Svölutjörn 49
gott, gott, gott að heyra um tíðindalausan dag- auðvitað verður maður að segja ömmu og afa frá þessu öllu saman!
kv. sigga maja og co.
"engar" fréttir eru góðar fréttir. En gott að heyra að þetta sé á réttri leið, það er líka allt annað að sjá hann. knús á ykkur og vonandi komist þið heim sem fyrst
kveðja
Heiðrún og co.
Maður brosir bara allan hringinn þegar maður les svona góðar fréttir :) :)
Gangi ykkur vel í dag!!!
Knús Dagbjört og co.
Kæru Ásdís og Björgvin æðislegt að heyra, enda segir engvar fréttir eru góðar fréttir. Baráttukveðjur Knús og kossar Asa C og Co.
Oh en yndislegt :)
Segi það sama og aðrir, nú hlýtur að fara að koma að heimferð!
Risaknús
Sunna og Magnús
Þetta kemur hægt og rólega hjá ykkur, góðir hlutir gerast hægt! :)
Kv,
Hrannar
Frábært að heyra að allt gangi orðið betur. Við mæðgur hugsum til ykkar og sendum ykkur góða strauma. Xoxo - Fjóla og dætur
Sammála öllum kommentum, allir þurfa frídag inn á milli til að safna kröftum eftir svona mikla törn. Svo halda skrefin áfram.....áfram heim! :)
kveðja
Lóa
Post a Comment