Dagurinn í dag var bara nokkuð góður og voru einungis 5 köst í dag sem er töluverð fækkun á milli daga og þau eru miklu vægari. Björgvin var duglegur að borða og fékk sér pizzu, kjúkling, skinku og fullt af snakki og drakk með. Það er svo góð tilfinning þegar hann biður um mat og tekur við honum.
Við reyndum að fara út í dag en hann var svo þreyttur að hann sofnaði sitjandi í kerrunni, við fórum þá bara aftur inn og leyfðum honum að sofa. Engin dagskrá var í dag, við mældum blóðþynninguna með tækinu okkar en á morgun verður tekin blóðprufa og farið í röntgen á lungum. Það er gott að fá svona daga þar sem ekkert er verið að pota í hann, þá getur hann aðeins jafnað sig aðeins á þessu öllu saman.
Á morgun er frídagur hér í USA og lítið um að vera á spítalanum. En á þriðjudaginn þá eigum við að fara til augnlæknis og í kyngjurannsókn. En svo er verið að tala um að leyfa okkur að fara á hótelið með hann og sjá hvernig okkur gengur. Ef þetta gengur eftir þá erum við alveg að fara að sjá fyrir endann á þessari dvöl hér, en þetta mun koma betur í ljós.
Björgvin er alveg frægur hér á göngunum fyrir söng sinn og að hafa sagt leiðinlegt við taugalæknana þegar þeir komu að skoða hann. Frægastur er hann fyrir augnhárinn samt :) Litli prinsinn minn er svo yndislegur og gerir grín og knúsar mömmu sína, er augljóslega farið að líða betur.
Kær kveðja frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
Monday, May 30, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
17 comments:
Gott að allt sé á réttri leið :) knús ester og co
Frábært ad fá svona fréttir â mánudagsmorgni!
Kv Nina
Nákvæmlega Nína, þetta er sko frábær byrjun á nýrri viku! Yndislegar fréttir alveg! :)
Knús Dagbjört og co
Ójá hann er sko yndislegur og yndislegt að fá svona góðar fréttir á mánudagsmorgni!
Risaknús
Sunna og Magnús
Frábært að allt er á réttri leið ;)
Kossar og knús
Sirrý og Co
Frábært að allt sé í rétta átt núna fer þetta allt að koma, hlökkum mikið til að sjá ykkur
Svava, Aggi, Hulda María og Stefán Logi
Bara frábært, hann er náttúrulega alveg ótrúlegur þessi drengur! :)
Bjarki
Frábærar fréttir, mikið er ég glöð að heyra að þetta sé allt að koma. Ég er ekki hissa að hann sé orðin þekktur litli sjarmörinn, þessi augnhár eru nú alveg til að bræða hjúkkurnar.
Knús á ykkur, við hugsum stöðugt til ykkar
kveðja
Heiðrún og co.
Vá hvað er gott að heyra góðar fréttir af ykkur :-) Verður fínt að fá ykkur heim fljótlega, þá verður veðrið vonandi orðið gott hér og öll aska farin úr loftinu :-)
Kv.
Ella María
Húrra fyrir ykkur og góðum degi!!! kveðjur yfir hafið, sigga maja og co.
Frábært að allt er á réttri leið hjá ofursnúllanum ;) Kveðja, Guðrún Þóra
Hann er náttúrulega bestur þetta yndi!! Sakna hans svoooo, hlakka til að knúsa ykkur þegar þið komið ;) Æðislegt að heyra að þetta sé allt að koma :*
æðislegar fréttir elsku mæðgin. Björgvin er alveg ótrúlegur. Hlakka mikið til að fá ykkur heim. koss Maja
Frábærar fréttir, þið fetið greinilega réttu fótsporin á leið til bata!
Gaman að brandarakallinn sé kominn á stjá líka :)
Kv,
Hrannar
Meiriháttar fréttir.
kv
Hrund
Gott elskurnar að allt gengur betur Baráttukveðjur knús og bros . Inga frænka og Co
Yndislegt að heyra þessar fréttir :) Gott að hann er farinn að borða og ekki síður hvað hann er orðinn frægur fyrir sönginn sinn!
Bestu kveðjur,
Rakel og Frosti
Post a Comment