Sunday, May 29, 2011

Dagur 27 í Boston - Laugardagur til lukku

Laugardagur til lukku, kannski ekki, en við fengum alla vega betri dag, sem betur fer. Björgvin fékk engin köst í nótt og byrjaði fyrsta kastið 8:45 í morgun og voru þau 9 talsins í dag (miðað við 12 í gær) en miklu vægari og hann var miklu hressari inn á milli. Hann hefur getað borðað smávegis og drukkið nóg til að hægt var að hætt að gefa honum vökva í æð.

Góðu fréttirnar eru þær að hann er að fá minna af vatnslosandi lyfjum en hann kom út á og við fórum í röntgen mynd af lungum í dag sem kom vel út og þar kom líka í ljós að hann er ekki að setja vökva í lungun þegar hann drekkur svo að við sluppum við sonduna.  Catherine, læknirinn hans hér úti, er hissa á því hve vel honum gengur að metta og að hann hafi komið svona snemma af gjörgæslunni, þannig að eitthvað gott er líka að gera þrátt fyrir allt hliðradótið sem er búið að vera að halda okkur við efnið.


Við notuðum tækifærið þegar við fórum niður á aðra hæði í röntgen mynd að fara aðeins á rúntinn og koma við í garðinum hér á spítalanum, það er svo gott veður úti og ekkert of heitt og mjög gott fyrir sálina hjá öllum aðilum að koma aðeins út. Hann var svo ánægður, hann sagði "Mamma, sjáðu bleiku blómin, falleg!".

Síðan að slangan var tekin úr brjóstholinu fyrir tveimur dögum hefur svona blóðvökvi verið að leka út úr sárinu og hefur Björgvin grisju yfir saumana, en núna hefur þetta lagast mikið, varla neitt sem er að koma núna. Losnar ábyggilega við umbúðirnar á morgun. En skurðurinn sjálfur lítur vel út og er bara opinn, ekki með neinar umbúðir. Hann virðist gróa vel en er samt frekar stór, nær frá handakrikanum og langt inn á bakið.

Björgvin byrjaði að fá róandi lyf í gær og fékk þau á 8 tíma fresti og fundum við mikinn mun á honum fljótlega eftir fyrsta skammtinn. Nú var því breytt að hann fær þetta lyf á 6 tíma fresti og vonandi mun nóttin vera góð í nótt, það er mikill munur fyrir hann að fá góðan nætursvefn þar sem hann verður mjög þreyttur eftir hvert kast og erfitt að fá þau á klukkutíma fresti.

Þetta fer allt að koma hjá okkur núna, eða er það ekki örugglega?? :)

Baráttukveðjur frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar

11 comments:

Anonymous said...

Jú, nú fer thetta allt ad koma!
Kv Nína

Anonymous said...

Ekki spurning nú er þetta allt að koma!! Gott að heyra að læknirinn hans er svona ánægð með útkomuna úr aðgerðinni :)
Baráttubataknús dúllurnar mínar :)
Dagbjört og co

Anonymous said...

Jú, nú hlýtur þetta að fara að koma, trúi ekki öðru!
Baráttukveðjur,
Hrannar

Anonymous said...

Jú algjörlega sammála, nú er allt komið í réttan farveg.

Rosalega eruð þið búin að vera dugleg

knús knús

Sunna og Magnús said...

Ó jú, nú skal þetta fara að koma!

Risaknús á ykkur, gott að þið fenguð að komast út og fá smá sól.
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Það er klárlega málið, nú er þetta bara upp á við héðan í frá. Engin spurning! Bestu kveðjur og knús til ykkar.
kveðja,
Rakel

Linda said...

Jú, svo sannarlega. Bestu kveðjur til ykkar!
Linda & Sindri

Anonymous said...

Já, þetta má alveg fara að koma. Sumrið ákvað líka greinilega að bíða eftir ykkur, sem er gott, en okkur fer að vanta hlýju á klakann ;)

Bjarki

Óli Örn said...

Yndislegt að "heyra" að þetta er allt að koma hjá ykkur :) Það er svo gott að komast smá út og fá súrefni sem sólin er búin að hlaða af orku ;O) Frábært að heyra að sárið sé að gróa svona vel!!! Það skiptir svo miklu máli svo að líkaminn sé ekki að eyða of mikilli orku í að laga það endalaust :) Það er vonandi að þessi köst fari nú að hverfa! Skelltu þér svo í nudd frænkudísin mín - þarft á því að halda :O)Bestu kveðjur, Óli frændi
Ps. og já KNÚSAÐU prinsinn frá mér :O)

Solla said...

Hæ Dísa duglega og Björgvin ofur.

Gott að litli karlinn fær lyf til að takast á við þetta, ekki hægt annað en að skilja að maður verði stressaður og hræddur í þessu ati. Góður svefn og smá upplyftingar með mömmu gera örugglega svo margt gott og hjálpa mikið til að láta allt gróa aftur. Núna verður allt upp á við, það er alveg ljóst. Mér hitnaði í hjartanu við að sjá myndina af ykkur saman þar sem Björgvin brosir út af eyrum.

Halldór said...

Glæsilegar fréttir og gott að heyra að guttinn sé að braggast enda ekki höndunum á neinum smá læknum.