Saturday, May 28, 2011

Dagur 26 í Boston - Óhamingja

Björgvin Arnar á ennþá erfitt með að kyngja og vantar að fá vökva, mjólk og vatn, í magann sinn. Hann getur kyngt fastri fæðu en er slappur og hefur ekki mikla lyst. Það kom kona til okkar í morgun sem er sérfræðingur í að finna út úr hvernig er best að koma fæðu ofan í börn sem eru með vandamál eftir aðgerðir. Hún vildi ekki að hann drekki þar sem honum svelgist á og getur verið að setja eitthvað í lungun og hætta er á lungnabólgu sem við megum ekki við núna. Hún vildi setja sondu í hann til að hann fái mjólk í magann sinn.

Í kvöld þá var reynt að setja sondu í hann og mjög vön manneskja reyndi þrisvar og ekki tókst það, alltaf einhver fyrirstaða í hálsinum. Þá var ákveðið að geyma þetta til morguns. En Björgvin var svo óhamingjusamur, svo þyrstur og grét mikið og vildi fá vatn að drekka.

Köstin voru á klukkutíma fresti frá kl 3 í nótt og svo var tímabil í dag þar sem hann virtist ekki ná sér upp úr þeim almennilega og var ekki alveg líkur sjálfum sér. Taugalæknir var kallaður til og vildi hann reyna að gefa honum róandi til að athuga hvort stress og álag sé ástæðan fyrir köstunum. Hann fékk fyrsta skammtinn sinn kl 18 í dag og varð strax meira líkur sjálfum sér og var reyndar mjög hress í smá tíma eins og sést á myndinni. Vildi setjast upp og horfa á Sveppa, sem hefur ekki gerst eftir aðgerðina.


Björgvin hefur verið mjög slæmur í maganum eftir að hafa verið svona lengi á sýklalyfjum og hafa engan mat í maganum í langan tíma. Nú á að rækta úr hægðunum til að athuga hvort einhver baktería hefur myndast og því vorum við flutt í einkastofu á meðan ekki er búið að finna út úr því. Sem er gott!


Mikið var nú gott að hafa Olgu ömmu til að hjálpa til og svo fengum við til okkar góða gesti, vini okkar sem voru líka hér á spítalanum og eru á leið heim á morgun.

Biðjum fyrir betri degi á morgun!

kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

10 comments:

Anonymous said...

knús elsku vinkona, dagurinn á morgun skal verða betri.

Bjarki

Anonymous said...

Æ, litla krúttid mitt, vonandi fer thetta ad lagast.
Koss og knús.
Kv Nina

Anonymous said...

Æ slæmt að heyra, en vonandi fer ástandið að lagast, baráttukveðju til ykkar.
Kv. Vala May

Anonymous said...

Biðjum fyrir betri degi á morgun!
Risaknús,
Hrannar

Anonymous said...

Knús elskurnar mínar hugsum til ykkar og sendum ykkur extra skammt af orku og ljósi

Kveðja Ester og co

Anonymous said...

Bataknús á ykkur mæðgin, alltaf gott að fá ömmmu í heimsókn.
kveðja
Una og Mirra

Anonymous said...

Vonandi verður dagurinn í dag betri en gærdagurinn.
Knús og kram á ykkur
Ella María

Anonymous said...

Sendum alla okkar baráttustrauma til ykkar elskurnar! Dagurinn skal verða betri!
Hugsum mikið til ykkar.
Kv. Bylgja og co

Anonymous said...

Kæru mæðgin, baráttu og bata kveðjur, því við höfum trú á að þetta lagist og við sjáumst heima fyrir 17. júní!! :) Biðjum fyrir ykkur. Knús og kossar Asa og Co

Anonymous said...

nú vona ég innilega að dagurinn hafir verið betri í dag en í gær- sendum alla okkar strauma til ykkar, kv. sigga maja og co.