Thursday, May 26, 2011

Dagur 24 í Boston - Flutt á dagdeild

Stórt hænuskref var tekið í dag þar sem vorum flutt af gjörgæslu yfir á dagdeild. Svona flutningur getur tekið á fyrir Björgvin og því gætu næstu tveir dagar verið erfiðir fyrir hann. En við erum ánægð, þetta er stórt hænuskref og ekki hægt að kvarta yfir því :)

Í morgun fengum við smá sjokk þar sem blóðþynningargildið var yfir 10! Það á að vera 2,5 - 3,5 og það þýðir að blóðið er tvisvar og hálfu sinni seinna að storkna en hjá okkur sem erum með blóðþynningarstuðul 1,0. Þetta var alltof hátt og þurfti að gefa honum K vítamín í æð til að lagfæra þynningargildið og svo fær hann ekkert blóðþynningarlyf í kvöld. Þetta getur verið hættulegt út af blæðingum og sérstaklega rétt eftir aðgerð. Það er alltaf eitthvað á hverjum degi sem fær blóðþrýsting foreldrana til að rísa :)


Skurðlæknirinn okkar kom og var bara ánægður með hann, segir vinstra lungað búið að aðlagast og opnast alveg og einnig stækka út í svæðið sem var tómt eftir aðgerðina. Enda er litli snúðurinn að metta svakalega vel, 98-100. En hann er líka á slatta af vatnslosandi lyfjum svo að það hjálpar einnig.

Björgvin er rosalega þreyttur og slappur og sefur mest allan daginn sem er kannski ekkert óvenjulegt eftir svona stóra aðgerð, það þarf að jafna sig og safna kröftum. Hann drakk 100 ml af mjólk í dag og borðaði nokkrar skeiðar af súpu og pínku ost. Einnig er hann slæmur í maganum af öllum sýklalyfjunum.

Nú vinnum við í að troða í hann og láta hann hressast. Hann heimtaði pizzu í dag sem er mikið batamerki og sagði "Mamma, hvar er pizzan mín??".  Það verður svo allt annað líf þegar hann getur losnað við slönguna úr brjóstholinu en það verður kannski eftir tvo daga. Einn leggur af þremur var tekinn í dag og var hann í hálsinum, en nú er hann með legg á vinstri fót og hægri hönd.

Olga amma kemur til okkar á morgun, það verður gaman að fá hana til okkar, hún kom tvisvar til okkar þegar við vorum í Boston 2007, hún lætur sig ekki vanta þegar mikið gengur á :-*

Kærleikskveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar

16 comments:

Anonymous said...

Þarna er krúttmolinn! :)

Aldeilis flott hænuskref, risahænur í Boston greinilega :)

Bjarki

Anonymous said...

Þetta eru frábærar fréttir :) Vonandi ert þú líka að ná að hvíla þig Ásdís eftir allan rússíbanann.
Mér finnst það nú vera meira en hænuskref þetta síðasta skref!!
kveðja
Lóa

Anonymous said...

Gott að fá fleiri góðar fréttir :) þetta var nú örugglega hanaskref.

Þið eruð svo dugleg knús knús
Kveðja Ester og co

Anonymous said...

Fögnum öllum svona skrefum!
Kv Nina

Anonymous said...

Þið hetjurnar klárið hverja baráttuna eftir annarri með glæsibrag!

Gott að hann sé kominn af gjörgæslu, það er nú bara valhopp :)

Kv,
Hrannar

Sunna og Magnús said...

Yndislegt, fleiri svona fréttir! :)

Mundu að fara vel með þig Ásdís mín, ekkert lítið sem er búið að leggja á þig undanfarnar vikur!

risaknús
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Hæ elsku Ásdís og Björgvin. Ég var fyrst í dag að uppgötva bloggið þitt og þvílíkar hetjur sem þið eruð. Vá. Ég segi ekki annað. Gott að þetta hefur gengið vel og lítur út fyrir að vera í rétta átt. Hugsa til ykkar og sendi ykkur batakveðjur að heiman. Bestu kveðjur, Gunna Sigga

Allý said...

Svo Æðislegt að heyra að þetta er allt saman að ganga framá við ;* Risaknús á ykkur, vildi óska þess að maður gæti komið til ykkar! Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið heim.

Anonymous said...

Gleðifréttir að Björgvin sé kominn á dagdeildina og biðju um pizzu:-)
Sendi ykkur mínar bestu kveðjur
Inga Huld

Anonymous said...

jibbí jej- gott að sjá þessa mynd af honum.....litla augnhárakrúttið. Reynið nú ÖLL að hvíla ykkur, kv. sigga maja og co.

Anonymous said...

Hænuskrefin eru smá en stór í huga okkar.Gangi ykkur vel með framhaldið Ásdís mín.Sæt mynd af flottasta stráknum.Knús í hús Hulda frænka.

Anonymous said...

yndislegur litli Björgvin Arnar :) Gott að fá stórt hænuskref...
knús og barátturkveðjur áfram. Ragga

Anonymous said...

Elsku Ásdís og Björgvin

Gott að heyra að það gangi vel, þó það eru hænuskref þá eru þau í rétta átt.
Knús á ykkur hetjurnar
kveðja
Heiðrún

Anonymous said...

Elsku Ásdís og Björgvin, hænuskrefin eru góð og kemst þó hægt fari!! Það eru góðar fréttir að komast á dagdeild og að Björgvin biðji um uppáhaldið sitt PIZZU. Sendum ykkur bestur kveðjur og knús Asa C og Co

Linda said...

Svo sætur, litli molinn :-) Gott að heyra að Björgvin sé að jafna sig og það styttist í að hann komist í Svölutjörnina að hlusta á jólalög!

Linda & Sindri

Anonymous said...

Elsku Ásdís & co! Gott að hetjan er á réttri leið. Það er sko töggur í þessum flotta strák. Hann lætur ekkert stöðva sig í að ná bata. Knús á ykkur og hlýjar kveðjur frá okkur öllum. Hanna María & co.