Þá erum við fyrir alvöru byrjuð á bataferlinu, hænuskrefin eru í rétta átt þó svo að lítil breyting sé. Björgvin er mjög slappur og vill helst bara sofa. Við erum að reyna að örva hann til að fá hann til að hressast og hreyfa sig aðeins, reyna að koma öllum vökva út um slönguna sem er í brjóstholinu.
Einnig þyrfti hann að drekka og borða meira, hann hefur fengið vatn og mjólk að drekka og nokkrar skeiðar af eðlamauki en þegar hann drekkur þá svelgist honum alltaf svo á, aðeins skárra í dag en í gær en vonandi fer þetta að lagast meira.
Við fórum með hann á rúntinn í kerrunni í dag, svona aðeins til að lífga upp á tilveruna og honum fannst það ágætt en vildi svo bara að fara að sofa eftir smá rúnt. Björgvin talar ekki mikið en þegar hann gerir það þá hvíslar hann svo lágt að við eigum í miklum vandræðum með að skilja hvað hann er að meina.
Á þessari stundu er kl 21:30 og er hann án súrefnis og er að metta 98 sem er þrusugott og vonandi helst þetta hjá augnháraprinsinum mínum :) Allir eru að tala um þessi augnhár, við erum orðin fræg hér út af augnhárunum haha.
Við fáum kannski að flytjast yfir á dagdeild á morgun, sem er mikið og gott skref til hins betra. Þá verður leggurinn tekinn úr hálsinum á honum, sem er saumaður í, sem verður gott að losna við og mikið væri gott að losna við slönguna úr brjóstholinu en það er ennþá slatti af blóði að koma þaðan svo að hún verður ábygglega að vera í nokkra daga í viðbót.
Kær kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar
Wednesday, May 25, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
22 comments:
Frábært ad bataferlid sé hafid! Já, thessi augnahár eru fræg :)
Kv Nina
Jei!! Heja heja í bataferlinu! :)
Björgvin er náttúrulega bara mesta sjarmatröllið í bænum með þessi löngu fínu augnhár :)
knús
Sunna og Magnús
Þið eruð svo miklar hetjur elskan mín. Gott að heyra að skrefin eru upp á við þó lítil séu ;)
Baráttukveðjur og knús
Sirrý og CO
Frábært að heyra að batinn sé byrjaður, við skulum bara biðja fyrir hænuskrefum en, að þau séu í rétta átt! Já, það er náttúrulega ekki hægt annað en að taka eftir þessum ótrúlegu augnhárum sem Björgvin er með!!!! :D Ég er svo spennt að fylgjast með þessari elsku og fá að sjá hann heilbrigðan sem fyrst.
Love you all <3 <3 <3
Olg´amma
Já nú fer þetta að koma. Gangi ykkur áfram vel!
Oh gleymdi að skrifa undir :)
Kv. Hrund....
Yndislegt að heyra að þetta er allt að koma hjá honum :) Sendi ykkur góða batastrauma :)
Kv, Óli frændi
Frábært að bataferlið sé hafið :) hann er svo mikið hetja og þið öll :)
Kv.
Aggi, Svava, Hulda María og Stefán Logi
:)
Allt að gerast. Gosið hætt og Björgvin smám saman að braggast.
kv
Stebbi.
Gott að bataferlið gengur vel. Auðvitað sjarmar Björgvin alla upp úr skónum með þessi löngu og flottu augnhár :)
Baráttukveðjur frá Aarhus
Bylgja Dögg og co.
Knús á ykkur duglega fólk. Góðir hlutir gerast hægt stendur einhversstaðar :)
Gangi ykkur vel
kv Sigga
Frábært að heyra að guttinn sé að hressast, nú verður þetta bara uppávið :-)
Kv.
Ella María
Mér finnst hænuskref frábær, fleiri svoleiðis takk! :)
Bjarki
Frábærar fréttir! :)
Góðir hlutir gerast hægt og vonandi að þið séuð loksins komin á beinu brautina!
Kv,
Hrannar
nú fer þetta að koma :) sendi ykkur hlýja strauma. Knús og kossar. Ragga
Gott að allt er í rétta átt hjá prinsinum. Höldum því áfram ;)
knús Inga Birna og co.
Frábærar fréttir.. ekki hægt annað en gleðjast yfir því að hlutirnir fara í rétta átt þó hægt sé.
Bestu kveðjur og risaknús
Svava og co.
gott að heyra að mettunin sé orðin svona góð - nú er það bara dagdeildin á morgun! Þetta kemur í hænuskrefunum...kv. sigga maja og co.
kæru Ásdís og Björgvin, gott að heyra um að bataferlið sé hafið, og eins og svo margir eru sammála um þá gerst góðir hlutir hægt. Við óskum ykkur alls hins besta. Höldum áfram að fylgjast með ykkur og biðja áfram. Asa C og Co :)
hæ,hó
hann er bestasti frændi í heimi
og líka duglegasti enda skyldur mér.
vona að allt sem eftir er gangi vel og að þið komið fljótlega heim afur en get ekki beðið eftir wð heyra meira um allt þetta drasl sem að ein lítil og sætasta (enda skyldur mér) dúlla á að durfa að ganga í gegn um.
kv.Anna mjöll frænka
hæ,hó
hann er bestasti frændi í heimi
og líka duglegasti enda skyldur mér.
vona að allt sem eftir er gangi vel og að þið komið fljótlega heim afur en get ekki beðið eftir wð heyra meira um allt þetta drasl sem að ein lítil og sætasta (enda skyldur mér) dúlla á að durfa að ganga í gegn um.
kv.Anna mjöll frænka
Góðar fréttir, allt á uppleið og frægi augnháraprinsinn að fara á almenna deild :)
Áframhaldandi batakveðjur
Elín
Post a Comment