Mikið var gott að fá betri dag í dag, léttirinn að vera ekki með blóðþrýstinginn í botni og áhyggjurnar svíðandi. Björgvin brosti meira að segja einu sinni dag, það var ótrúlegt og allt varð betra.
Dagurinn byrjaði með því að hann var svo slappur og lyfjaður að okkur leist nú ekkert á þetta, gat ekki opnað augun svo að við reyndum að örva hann og þá kom hann aðeins til. Hann var hitalaus í allan dag og var frekar eðlilegur í öllum lífsmörkum.
Þegar hann kyngir vatni þá er eins og honum svelgist á og er þetta áhyggjuefni, við vonum að þetta verði betra á morgun en það er ekki þorandi að gefa honum neitt nema tæran vökva ef hann er að setja eitthvað ofan í lungun. Ef þetta lagast ekki eða verður betra á morgun þá á að kalla á háls, nef og eyrnalækni til að koma og kíkja á hann.
Einnig talar hann ekki heldur hvíslar og andar mikið inn á milli orða. En hann nær samt að segja að hann vilji fá vatn að drekka og að honum langar að fara heim og sofa í sínu rúmi :)
Hann verður á gjörgæslunni í nokkra daga í viðbót, ábyggilega fram að helgi, þetta var stór aðgerð og það tekur tíma að jafna sig á þessu öllu saman. Vonandi munum við sjá jákvæð bataskref á hverjum degi.
Takk fyrir öll kommentin elsku vinir og ættingjar, það voru 290 manns sem lásu síðuna okkar í dag :)
Knús
Ásdís og Björgvin Arnar
Tuesday, May 24, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
20 comments:
Gott að heyra að allt er á réttri leið! Þetta kemur allt saman hægt og sígandi, þetta var stór aðgerð eins og þú sagðir og tekur bara sinn tíma. En á meðan hver nýr dagur er betri en sá síðasti þá er þetta allt í áttina :) :)
Voanadi færðu fleiri bros frá snúllanum í dag!! :)
Áframhaldandi baráttubatnaðarknús :)
Dagbjört og co
Maður væri nú alveg til í að fá eitt bros eða jafnvel gott knús frá litla prinsinum sínum :)
Góðir hlutir gerast hægt!
Kv. Nína
Yndislegt að sjá hvað frændi er sterkur og með mikinn lífsvilja :) Hann ætlar sko að klára þetta og verða frískur - ekki slæmt að eiga bestustu mömmsuna í heimi við hliðina á sér í þessu ferli!
Hugsa til ykkar á hverjum degi og sendi ykkur kærleik og orku :O)
Bestustu kveðjur og stórt KNÚS frá Óla frænda
Kveðja frá Svíþjóð. Ég dáist að ykkur!
Rakel og co.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt :)
Trúum því að nú liggi leiðin hægt en örugglega uppá við hjá ykkur!
Batakveðjur
Hrannar
ég er orðlaus- þið eruð ofurhetjurnar mínar. Dáist að ykkur alla daga og ykkar kröftum.
kv. sigga maja og co.
Gott að þetta er allt í rétta átt :)
Við hugsum til ykkar oft á dag
Knús til ykkar
Aggi, Svava, Hulda María og Stefán Logi
Mikið áttu fallegan og duglegan dreng elsku Ásdís. Orkukoss frá landi ísa og eldfjalla, maja
Elsku Ásdís þetta er mikil eldraun sem þið eruð að ganga í gegnum og litli Björgvin er svo duglegur og að brosa meira að segja fyrir mömmu sína er nú ekki lítið eftir svona meðferð.
Hann hlýtur núna að vera búin að fá sitt og allt verður upp á við hér eftir og ég vona að hann komist að lúlla í sínu rúmi sem fyrst.
Yndislegt að heyra að nú virðist batinn vera að byrja, en óskaplega tekur þetta langann tíma. Greyið litla hvað hann er ótrúlega duglegur og þið foreldranir með honum. En þetta er mikill léttir að heyra að í dag sé hann betri, þetta er svo sannarlega spor í rétta átt, Guði sé lof!!!
Haltu áfram Ásdís mín að vera svona jákvæð og sterk, ég er sannfærð um að jákvæðir staumar í kringum litla krílið hafa mikið að segja til að hann nái bata fyrr.
Hlakka til að sjá ykkur elskurnar
<3 <3 <3
Olg´amma
Manni hlýnar alltaf svo um hjartaræturnar þegar góðir hlutir eru að gerast hjá ykkur.
Hann Björgvin er alveg ótrúlegur, svo duglegur og sterkur. Eins og mamman hans!
Risaknús
Sunna og Magnús
En gott að lesa þessa færslu:) Þið eruð alveg mögnuð! Hann er svo mikil hetja þessi litli kall, svo ómetanlegt að heyra að það hafi komið bros:) Hugsum til ykkar alla daga og sendum ykkur baráttustrauma!
Takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa Ásdís!
xxx Bylgja og co
Æ hvað er gott að fá smá góðar fréttir. Óskandi að þetta fari allt að mjakast uppávið núna.
Baráttukveðjur úr öskunni á klakanum.
Ella María
Mikið skil ég Björgvin vel, að hann vilji bara fara heim og sofa í sínu rúmi!!! Þessi litla hetja er ótrúleg og ég vona sannarlega að það styttist verulega í að hann komist heim, hraustari en nokkurntíma ;)
Við erum með hugann hjá ykkur
Tek undir með Nínu - góðir hlutir gerast hægt. Þið standið ykkur svakalega vel og ég dáist að þér Ásdís mín. Kærleikskveðja, Fjóla og dætur
Smá gossip svona til að breyta til: við héldum uppá afmæli Eugenio (23/5) og Roberto (25/5) í kvöld (24/5) og ég var með hamborgarahrygg í matinn (átti líka ein litla dós af rauðkáli með og rabbarbarasultu). Nú vilja krakkarnir mínir helst borða það í allann mat! Ég fann búð hér í Milano(ótrúlegt en satt) sem selur hamborgarahryggi!!!!
Love you alltaf!!!
Olg´amma
Elsku Ásdís mín, það er ekki af virðingarleysi sem ég skrifa smá gossip, heldur bara til að létta pínu á andrúmsloftinu sem er, eðlilega, frekar þungt. Ég veit þú skilur það og veist að þið eruð alltaf í bænum mínum.
<3 <3 <3
Þín Olga
Glæsilega Ásdís mín, mikið er alltaf gaman að fá góðar fréttir, ég kannski telst sem tveir þar sem ég þarf stundum að tékka bæði í vinnunni á morgnana og þegar ég kem heim á daginn af fréttum og jafnvel að lesa tvisvar til að vera örugglega viss um að missa af engu :) Yndislegt að fá góðar fréttir, við Íslendingar erum mörg í eðli okkar óþolinmóð eins og eldfjöllin í kringum okkur en þú ert nú stöðug og cool meira eins og flott tré sem lætur ekki öskuna hafa áhrif á sig heldur breytir henni í góðan áburð :) Gott að allt sé á réttri leið og hlakka til að fá fleiri slíkar fréttir. Risaknús Ester, Hjalti, Sara og Alexander
Mikið er gott að heyra að það kom betri dagur og enn betra að heyra að það kom bros :) Sendi bros og knús til baka til ykkar.
Bestu kveðjur,
Rakel og Frosti hundur 15 ára
Elsku Ásdís og Björgvin þið eruð hetjur, þið eruð í bænum mínum, Vonandi halda hlutirnir áfram á rétta vegu og litli kúturinn getur farið heim í rúmið sitt það er jú alltaf best í sínu rúmi. Knús og kossar frá Ingu frænku og fjsk.
Post a Comment