Rétt áður en hann er tekinn úr öndunarvélinni |
Eftir það þá var hann með svo háan púls og var eiginlega í heila 4 klukkustundir með púls um 200. Vá hvað það var stressandi og honum leið greinilega illa, gat ekki slakað á. Svo allt í einu fór hitinn að stíga og fór í 40.5 og þá var honum skellt á kuldateppi og klaki settur á hann. Læknirinn gaf honum hitastillandi og morfín við verkjum. Eftir svolitla stund fór hann loksins að róast og sefur núna.
Við skulum vona að þetta fari bara upp á við héðan í frá en það góða við daginn er að hann er kominn úr öndunarvélinni og það er ekkert smá stórt skref :) Hér á myndinni er hann kominn úr henni og er að fá sér svampsleikjó sem er með smá vatni í og er með klaka á sér á tveimur stöðum. Hann þarf á súrefni að halda núna, vonandi mun það svo lagast með tímanum.
Nú sefur hann vært og vonandi nær að hann að hvíla sig í smá stund. Ég held að ég geri það sama bara.
Kærleikskveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar
15 comments:
Knús og kærleikskveðja til baka!
Vá, það fæst greinilega ekkert gefins í þessari baráttu hjá ykkur hetjunum. En það er frábært að stóru áfangarnir eru að nást og nú bara hlýtur þetta að fara að verða léttara frá degi til dags. Ég pant það!
Bjarki
Elsku hetjurnar okkar þetta er frábært skref þó dagurinn hafi verið erfiður þá verður nýr og betri dagur á morgun :) Næstu skref hljóta að vera einfaldari. Risaknús frá okkur Ester og co
Úff gott að þessi stressdagur er búinn og nú taka bara við bjartari stundir er ég viss um!! :)
Þið eruð bestust :)
Knús Dagbjört og co
Ég panta það sama og Bjarki. Það er löngu kominn tími á að bara góðir hlutir gerist!
Risaknús til ykkar. Þið standið ykkur svo ótrúlega vel að það hálfa væri nóg!
Sunna og Magnús
Nú hlýtur að styttast í endann á þessari rússíbanaferð, trúi ekki öðru!
Best að leggja inn sömu pöntun eins og Bjarki, Sunna og Magnús.
Þið eruð svo sterk og dugleg, þið eruð á sigurbraut, engin spurning!
Knús
Hrannar
Jamm, legg inn sömu pöntun :) Þið eruð svo ótrúlega dugleg!
Kv. Nína
Þið standið ykkur eins og hetjur! Fulla ferð áfram núna!
Baráttukveðjur!
Hrafn
Gott að hann er kominn úr öndunarvél, er farin að hlakka til að fá ykkur heim, það getur ekki annað en verið nokkrir dagar í það. Gangi ykkur vel næstu daga. koss og knús, maja
Gott að hann er kominn út öndunarvél.
Það er yfirleitt alltaf vont að vakna eftir öndunarvél og fólki líður yfirleitt alltaf illa þegar það vaknar ( eins og þú veist auðvitað)
En það er frábært að það sé afstaðið :)
að öðru leiti tek ég undir með félaga Bjarka... nú kemur þetta !!!!
kv
stebbi.
Frábært að þetta skref er búið! Þetta er risaskref og litla hetjan er að taka það eins og önnur skref, ótrúlegur drengur Ásdís :)
Höldum áfram að hugsa til ykkar og senda góða strauma. Takk aftur fyrir að vera svona dugleg að leyfa okkur að fylgjast með.
kveðja
Lóa
Það er ótrúlegt hvað er lagt er á lítinn dreng. En eins og ég held að þú sjálf Ásdís mín hefur sagt eitt skref afturábak eru tvö áfram og þeir áfangar sem þegar hafa náðst eru stórvirki. Gangi ykkur áfram sem best kveðja Asa C og Co
Elsku Ásdís, úff púff, maður fær bara hraðann púls af að lesa þetta. Gangi ykkur vel, jú núna er þetta komið og bara bein leið upp á við. Hlakka svo til að fá ykkur heim :)
Knús og orkusending.
Sigga
Guð minn almáttugur hvað þetta er búið að vera erfitt hjá ykkur, en vittu nú getur þetta bara verið uppávið héðanífrá. Trúðu bara á það elskan mín og vertu áfram eins jákvæð og þú ert búin að vera alla tíð frá þið komuð út. Þá eru jákvæðir straumar í kringum hann og svo sendir Olg´amma sínu elskulegustu og bestu jákvæðisstrauma frá hitabeltislandinu Ítalíu.
Þúsund kossar til ykkar allra
Olg´amma
Kvitta, kvitt- Góðir hlutir gerast hægt. Þið eruð í öllum okkar bænum. kv. sigga maja og co.
Mikið á ykkur lagt, sendi ykkur netknús og góðar hugsanir í tonnavís. Kveðja Una
Post a Comment