Sunday, May 22, 2011

Dagur 20 í Boston - Lífshættulega hár hiti

Manni stóð nú ekki á sama kl 8 í morgun þegar Björgvin var kominn með 42,3 stiga háan hita. Ég hef bara aldrei heyrt annað eins og læknarnir héldu að mælirinn væri bilaður en þá notaði hjúkkan marga mæla og mældi á mörgum stöðum á líkamanum. Þetta var raunverulegur hiti og því voru ísmolar settir á höfuðið á honum og um hann miðjan og einnig var sett kuldateppi undir hann til að kæla hann.

Sem betur fer lækkaði hitinn og hann var ekki í eiginlegri lífshættu þar sem rétt var brugðist við þessu en hann er ennþá með hita og ekki er vitað af hverju. Búið er að leita af sýkingu en ekki hefur neitt ennþá komið út úr því en blóðið sýnir sýkingamerki. Skipt var um sýklalyf og hann settur á breiðvirkara sýklalyf. Vonandi fer það að kikka inn.


Þarna er litli kúturinn minn og við foreldrarnir höfum aðstöðu þarna hægra megin, sjá tölvu ofan á bekk til að sofa á. Hér erum við allan daginn hjá honum og fylgjumst grannt með öllu sem fer fram og hvernig honum líður.

En góðu fréttirnar eru þær að vinstra lungað virkar orðið vel og röntgen mynd af lungunum lítur vel út, hann er að öðru leiti alveg tilbúinn að koma úr öndunarvélinni fyrir utan hitann. Læknarnir vilja sá hvort hann nái að lækka á næstu tímum en ef ekki þá látum við nóttina líða og athugum í fyrramálið.

Hitakveðjur,
Ásdís og Björgvin Arnar

12 comments:

Anonymous said...

Vonum nú að hitinn fari að lækka. Trúi ekki öðru enda er hann algjör baráttukarl :)
Knús frá Svölutjörn 1

Anonymous said...

Já, nú fer thetta ad koma! Algjör jaxl thessi drengur.
Kv Nina

Sunna og Magnús said...

Gott að heyra með lungun, vonandi lækkar hitinn líka, skil vel ykkur hafi brugðið að sjá þessa tölu.

Risaknús, munið að fara vel með ykkur!
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Þú ert meiri naglinn Dísa mín, það sem hefur gengið á í þessa 20 daga væri alveg næg spenna fyrir heila ævi fyrir flesta. Það er fyrir utan allt sem hefur gengið á þar á undan!

Frábært að lungað lítur vel út :)

Bjarki

Þórey Arna said...

Vonandi er hitinn á undanhaldi og vonandi verður hann kominn á rétt ról næst þegar við heyrum frá þér ( vonandi síðar í dag ). Vonandi - vonandi - vonandi!! Frábært að heyra með lungað, hann er snillingur þessi strákur út í gegn :)

Anonymous said...

Þetta er allt í áttina hjá ykkur og gaman að heyra hvað lungað lítur vel út :)
Vonandi að það gangi svo allt vel þegar litla hetjan verður vakin!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Gott að lungað er að taka vel við sér og hitinn hlýtur að gera það líka í dag :)

knús frá okkur Ester og co

Anonymous said...

Gott að heyra að þetta sé allt í rétta átt, óskandi að hitinn lækki sem fyrst. Þið eruð ótrúlega dugleg. Baráttukveðjur og knús til ykkar.
Kv Hildur Bára

Anonymous said...

Það á ekki að ganga af honum þessari litlu elsku. Ég hef nú bara aldrei heyrt um annann eins hita!!!!
En nú ætlar amma að koma og vera í nokkra daga hjá litla stráknum sínum eins og Atli hefur sagt þér. Ég kem þ. 26. maí og fer aftur 31. og verð á Best Western hótelinu sem er á horninu hjá spítalanum. Vonandi verður gullmolinn vakandi og hress að heilsa uppá Olg´ömmu!!!!
Kærleikskveðjur

Anonymous said...

Litli kallinn. Vonandi fer hitinn að lækka. Gott samt að sjá að aðgerðin gekk vel. Knús á ykkur

kv. Inga Birna og co.

Sirrý said...

Gott að heyra með lungað og krossum fingur um að hitinn fari að lækka verlulega. Sendum allar vættir og heilladísir til ykkar allra.
Kossar frá okkur
Sirrý og Co

Anonymous said...

hugsum mikið til ykkar og treystum því að hitinn fari að lækka......hér er aska í loftinu og það væri nú ekki gott ef Björgvin Arnar fengi hana ofan í fínu lungun - gott að vita af honum í allra bestu höndum í boston í staðinn! kv. sigga maja og co.