Þá er litli kúrurinn minn farinn í aðgerðina, hann fékk kæruleysislyf svo að honum var alveg sama að fara með læknunum.
Við Björgvin vorum að tala saman í gær og hann sagði þá "Mamma mín, við förum á eftir heim í Svölutjörn þá ætla ég að hjóla smá, hlusta svo á tónlist, Snjórinn fellur (jólalag með Bjögga Halldórs) og svo Póstinn Pál, hvílum okkur svo smá og svo kaupum við harðfisk og smjör og afi og amma og Andrea koma til okkar að borða, eigum við að gera það mamma?". Meira krúttið sem ég á!
Aðgerðin mun taka 5-6 tíma með öllu, þ.e. þangað til við fáum að sjá hann aftur. Þá verður hann kominn á gjörgæsluna og verður í öndunarvélinni i 2-3 daga á meðan líkaminn er að aðlagast breytingunum og einnig til að sjá hvernig hjartað hans mun bregðast við þessu álagi. En hann mun ábyggilega vera á gjörgæslunni í 4-5 daga samtals og fara svo yfir á dagdeild af allt gengur vel.
Þetta er stór aðgerð og er frekar áhættumeiri fyrir Björgvin þar sem hjartað hans er ekki alveg fullkomið en þeir lofuðu að hugsa vel um hann fyrir okkur. Það verður mikill léttir þegar þetta verður búið og við biðjum fyrir því að þetta muni ganga vel!
Nokkur orð um skurðlæknirinn hans:
Considered one of the best pediatric cardiac surgeons in the world, this doctor of Chilean extraction not only performs miracles with his hands on the smallest of hearts; he restores life to whole families coming from all corners of the globe
Baráttukveðjur frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
Thursday, May 19, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
19 comments:
Takk fyrir að gefa þér tíma til að setja inn upplýsingar. Er stöðugt að hugsa til ykkar. Knús, Hanna María
Gangi ykkur sem allra allra best.
Hugsum svo mikið til ykkar!
Risakram
Sunna og Magnús
Sendum góða strauma til ykkar. Greinilega ekki amalegur læknir, hann Del Nido, gott að vita af B í góðum höndum!
Hrund og co
Sá kann að meta það góða í lífinu :)
Hann er í meistarahöndum litli meistarinn!
Hugurinn er með ykkur, get ekki beðið eftir að þetta verður búið!
Bjarki
Ég vona að þið finnið hlýju straumana sem allir eru að senda ykkur héðan úr kuldanum á íslandinu! kv. sigga maja og co.
Litla krúttid okkar! Vid sendum áfram góda strauma og hugsum til ykkar.
Kv Nina og co.
Björgvin Arnar er sko algjör gullmoli og hin mesta hetja. Það verður svo góð stund þegar þið komið heim aftur og borðið saman með ömmu, afa og Andreu í Svölutjörninni:-)
Sendi mína bestu strauma til ykkar og Ásdís takk fyrir að gefa þér tíma til að blogga og leyfa okkur hinum að fylgjast með framvindu mála hjá ykkur.
Bestu kveðjur og knús Inga Huld
Gangi ykkur vel. Hugsum til ykkar. Hetjur bæði tvö.
kveðja Svölutjörn 49
Hlökkum til að fa ykkur aftur i götuna til okkar
Strákurinn er sko greinilega í heimsklassa höndum!
Hugurinn er hjá ykkur og stanslaus straumur af góðum og jákvæðum hugsunum fylgir með...
Baráttukveðja,
Hrannar
Elsku Ásdís, ég tek undir með Hönnu Maríu að þakka þér fyrir að taka þér tíma til að upplýsa okkur um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Það heyrist á þér, þó svo þú reynir að vera sterk, að þú ert undir hræðilegu álagi, en alltaf svo jákvæð!!! Þú ert alveg sérstök manneskja og þess vegna eru hlutirnir að ganga upp. Ég var að tala við Atla í símann og hann sagði mér hversu vel aðgerðin gekk og er ég Guði (og líka Dr. Del Nido) þakklát fyrir það, :D
Love you <3
Olga
Nú þegar Björgvin litli er ekki lengur með sýkingu í lungunum þá á hann vonandi ekki að hafa lengur þörf fyrir súrefni og fær ekki lengur lungnabölgur í tíma og ótíma, þannig að hann getur farið í leikskólann að leika við krakkana litla krúttið hennar ömmu sín!!!!! Oh, hvað mig hlakkar til að heyra þig segja mér frá því :D
Sjöundahimnakveðjur frá Olg´ömmu <3
frábært.
Gangi ykkur vel !!!!
hlakka til að heyra framhaldið
kv
Stebbi
Hann er algjör gullmoli hann Björgvin Arnar þinn - hugsa til ykkar og óska ykkur alls hins besta. Þið standið ykkur rosalega vel! Batakveðjur, Fjóla og dætur
Gangi ykkur sem allra best, gullmolinn þinn er algjör hetja! datt inn á bloggið og er búin að vera lesa, algjör víkingur, strákurinn þinn. Sendi bárratustrauma til hans og þín.
Kveðja, Vala May
Við erum með hugann hjá ykkur kæru vinir. Þið standið ykkur frábærlega við trúum því að þetta hjálpi hetjunni okkar til betri heilsu. Hlökkum mikið til að fá Björgvin aftur í leikskólann. Sendum hlýjar hugsanir og góðar kveðjur yfir hafið... Láttu litlu hetjuna vita hvað við söknum hans mikið... kær kveðja frá Holti
Kristín
Gangi ykkur endalaust vel!
sendi mínar bestu kveðjur!
Kv. Þessi ókunnuga, Kolbrún Helga :)
Hugurinn, hjartað og hugrekkið.....allt sent vestur um haf!!
kveðja
Lóa
Verð að taka undir með Hönnu Maríu, takk fyrir að halda okkur upplýstum, það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim í dag var að athuga hvernig gengi hjá ykkur ofurhetjunum. Stóla á að aðgerðin og það sem á eftir fylgi gangi sem allra best :-)
Kv.
Ella María
Dr. Del Nido er maðurinn, klárt mál, það var einmitt hann sem að gerði aðgerðina á Ásgeiri Erni á sínum tíma.
Innilegar batakveðjur og vona að þetta sé loksins að koma hjá ykkur.
Post a Comment