Mikið var gott að fá loksins að sjá hann aftur, honum er haldið sofandi í öndunarvél og með tvær slöngur út úr brjóstinu til að taka blóð og annan vökva sem kann að koma eftir aðgerðina og einnig er hann með plástur yfir skurðinum sem er rétt fyrir neðan handakrikann á honum.
Einn af skurðlæknunum kom og merkti vinstri öxlina hans Björgvins með upphafsstöfum sínum til að þeir myndu örugglega skera hann réttum megin. Jú það er nú lykilatriði að vera með það á hreinu.
Sá hluti sem var tekinn var harður, þykkur og mjög óeðlilegur útlits, skurðlæknirinn var feginn að hafa tekið hann út. Efri hluti lungans er orðinn aðeins stærri vegna áreynslu og mun stækka meira í plássið sem myndaðist. Neðri hlutinn var sendur í ræktun til að athuga hvernig bakteríur í honum og hvort rétt sýklalyf séu notuð núna.
Staðan núna er þannig að efra vinstra lungað er fallið saman og eru þau að vinna í því að koma því upp aftur. Honum verður haldið sofandi í öndunarvélinni og eftir 12-16 tíma þá mun áætlun vera búin til, ef vel gengur þá verður kannski reynt að taka hann úr öndunarvélinni seinni partinn á morgun.
Allar myndir eru svo svakalegar að ég tel að þær séu ekki fyrir bloggið að þessu sinni.
Takk fyrir öll kommentin, þið eruð frábær og það munar miklu að sjá hverjir eru að fylgjast með og hugsa til okkar! :)
Mikið gott að þessu er lokið og vonandi gengur honum vel að komast af gjörgæslunni svo að bataferlið geti hafist.
Batakveðjur frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
24 comments:
Elsku Asdis,
takk fyrir ad leyfa okkur ad fylgjast med. Mikid er gott at vita ad adgerdin gekk vel. Nu er vonandi betri timar framundan fyrir litlu hetjuna.
Bestu kvedjur,
Maria&Benni
I am so glad it went well!!! Björgvin is so strong going through this... Thanks for sharing the good news! / Peter Ekstrom
Elsku Ásdís mín
Mikið er ég fegin að aðgerðin sé búin og hafi gengið vel. Nú eru skrefin bara fram á við. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með, þið eru alltaf í bænum mínum.
knús á ykkur og risa knús á Björgvin
Kveðja
Heiðrún og co.
Frábært að þessum áfanga sé lokið og að allt hafi gengið vel! Verður bara gott fyrir hann að losna við þetta.
Bestu kveðjur,
Hrund
Koss og knús!
Kv Nina
Gott að aðgerðin gekk vel. Hann er svo mikil hetja!
Kossar og knús
Rakel
Frábært hvað aðgerðin gekk vel! Þá tekur við næsti kafli og miðað hvað þið hetjurnar eru sterkar og duglegar að þá endar hann vel líka, engin spurning!
Batakveðjur
Hrannar
Frábært að heyra að allt gekk vel.
Bestu kveðjur til ykkur úti.
Kv. Þórir
reynið nú að hvíla ykkur eftir spennufallið - þið þurfið svo sannarlega á því að halda eftir þennan rússíbana- takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa. kv. sigga maja og co.
Frábært að heyra að aðgerðin gekk vel :) hugsum mikið til ykkar.
Kv.Svölutjörn 1
Þvílíkt gott að þessi kafli er búinn og að allt gekk að óskum. Héðan í frá verður allt bara upp á við! :)
Okkar allra bestu batakveðjur!!
KNÚS Dagbjört og co
Glæsilegt að aðgerðin gekk vel! Núna er bara að klára þetta og koma sér aftur á ról!
Kv,
Hrafn
Frábærar fréttir :)
Vonandi liggur leiðin bein og breið til góðs bata héðan í frá.
kv
Stebbi.
yndislegt að fá svona góðar fréttir til að fara með inn í helgina:-)
Bestu kveðjur Inga huld
Jesús hvað er gott að heyra þetta hafi gengið svona vel!
Risaknús til ykkar og gangi ykkur vel í framhaldinu, þið eruð mestu hetjur sem við þekkjum!
Sunna og Magnús
Þið eruð þvílíkar hetjur. Takk fyrir að skrifa allar þessar fréttir og gera okkur kleift að fylgjast svona vel með. Björgvin er alveg super sterkur! ;)
ljós,
Hjalti og co.
Gott að heyra að allt hafi gengið vel, hetjan getur vonandi hvílt sig aðeins næstu tímana og vaknar vonandi vel þegar þar að kemur :-)
Styrkur þinn hreint óskiljanlegur Ásdís mín - drengurinn ótrúlega heppinn að eiga þig!
Baráttukveðjur á ykkur
Ella María
Elsku Ásdís,
Gott að heyra að aðgerðin gekk vel. Það er ekki einu sinni hægt að byrja að ímynda sér hversu erfitt það er að ganga í gegnum þetta. En nú fer þetta allt að koma og þið verðið komin heim á klakann hress og kát áður en þið vitið af :)
Bestu kveðjur,
Rakel og Frosti
Elsku Ásdís mín frábært að heyra að aðgerðin gekk svona vel og nú verður allt vonandi á uppleið hjá Björgvini stóru hetjunni okkar.Farðu vel með þig og sendi ykkur knús og kossa yfir hafið.Kveðja Hulda frænka.
Frábært að heyra að aðgerðin gekk vel. Gangi ykkur rosalega vel í framhaldinu! Hugsa vel til ykkar allra.
Brynjar
YYYYYYYYYYYYYNDISLEGT!!!!!!!!!!!!! Takk fyrir að vera svona dugleg að uppfæra bloggið frænkudís :O) Kærleikskveðja, Óli frændi
Kæra Ásdís,
það var mikill léttir að heyra hvað þetta er búið að ganga vel. Nú var stigið stórt skref í rétta átt!!!Takk enn og aftur fyrir hvað þú ert dugleg að blogga, það er rosalegur munur að fá að fylgjast svona vel með. Guð geymi ykkur öll. Þó fjarlægðin sé mikil þá eruð þið alltaf hjá mér í anda.
Love you!!!
Olg´amma
Ég held bara að Björgvin þyrfti endilega að koma til hennar ömmu sín í hlýjuna til að lungun fái að endurnærast vel þegar það versta er yfirstaðið!!!!! :D
Olg´amma
Post a Comment