Thursday, May 19, 2011

Dagur 17 í Boston - Aðgerðin á morgun

Björgvin Arnar var nú ekkert upprifinn þegar við sögðum honum að við væru að fara aftur á spítalann. Við vorum lögð inn og það var byrjað á því að taka lungnamynd og taka blóðprufu og setja legg í. Þannig að þetta var erfiður dagur, Björgvin er svo hræddur og konan sem græjaði þetta sagðist aldrei hafa séð svona mikla hræðslu áður (og hún gerir bara þetta allan daginn).

Björgvin þarf svo að fara í blóðprufu um miðnætti og fær róandi fyrir hana, ekki annað tekið mál af foreldrunum og svo fær hann líka sýklalyf í æð þar sem hvítu blóðkornin eru orðin mjög há. Hann fær svo Heperin í æð í nótt (blóðþynningarlyf).


Skurðlæknirinn okkar, Dr. Del Nido, kom og talaði við okkur áðan. Við berum svo mikla virðingu fyrir honum að maður tiplar alveg á tánum þegar hann er hérna og passar sig á því að heilsa honum ekki of fast, mjög dýrmætar hendur! :)

En hann sagði að þessi aðgerð væri nauðsynleg og því hefði hann troðið henni inn í áætlunina hjá sér. Það er ekki gott að hafa lungað svona, þar sem hætta er á sýkingum og einnig á blóðrennsli á þessum svæði. Vildi græja þetta sem fyrst.

Aðgerðin verður kl 13-14 á morgun og mun taka 3-4 tíma.

Við verðum að treysta á alla þessa sérfræðinga að þeir standi sig og að allt gangi vel á morgun. Það er ekkert val, þetta verður að gerast til að litli kúturinn minn geti öðlast betra líf og heilsu. Já heilsan er það mikilvægasta sem við eigum og að njóta hvers dags með þeim sem standa manni næst er það dýrmætasta sem til er.

Spenningskvíðakveðja frá Boston
Ásdís og Björgvin Arnar

11 comments:

Óli Örn said...

Knús og kærleikur frá okkur - Bið um að þetta gangi vel í dag...
Óli frændi

Sunna og Magnús said...

Gangi ykkur sem allra allra best í dag.
Vonandi er þetta fyrsta skrefið í átt að betri heilsu og betra lífi.

Risaknús, við sendum okkar bestu strauma yfir hafið.

Sunna og Magnús

Anonymous said...

Gangi ykkur rosa vel, við hugsum til ykkar og sendum hlýja strauma til ykkar
knús
Svava, Aggi, Hulda María og Stefán Logi

Anonymous said...

Hugsum mikið til ykkar :) ÁFRAM BJÖRGVIN þú ert algjör hetja og munt tækla þessa aðgerð eins og SUPERMAN :)
kv.Svölutjörn 1

Anonymous said...

Gangi ykkur sem allra best í dag!
Hugurinn verður hjá ykkur og stanslaus sending af góðri orku og hlýjum straumum...

Knús
Hrannar

Elin said...

Óska ykkur alls hins besta í dag. Mun hugsa til ykkar. Þið eruð algjörar hetjur.
Libraknús og kveðjur
Elín

Kvartmann said...

Baráttu og batnaðarkveðjur!
Kv,
Hrafn

Anonymous said...

Gangi ykkur bara rosalega vel!! Kveðja Steini

Anonymous said...

Elsku Ásdís mín, oh hvað það er frábært að Dr. Del Nido skuli hafa getað fundið tíma í aðgerðina fyrir litla kútinn okkar. Björgvin er í bestu höndum sem hægt er og eru væntingar mínar miklar og ég er viss um að læknirinn mun stuðla að því að líf Björgvins á eftir að bætast til muna.
Kærleikskveðjur og þúsund kossar frá okkur öllum hér á Ítalíunni <3
Olg´amma

Anonymous said...

Sendi ykkur extra skammt af ljósi, styrk, þolinmæði og knúsi.

Þið eruð algjörar hetjur og það verður frábært þegar þetta er búið.
Risaknús Ester, Hjalti, Sara og Alexander

Anonymous said...

Vona að allt gangi vel hjá ykkur mín kæru! Sendi ykkur endalaust mikið af góðum hugsunum og straumum :-) Knús, Hanna María