Wednesday, May 18, 2011

Dagur 16 í Boston - Dagsetning ákveðin

Við skelltum okkur í verslunarmiðstöð í dag þar sem veðrið er þannig að ekki er hægt að vera mikið úti þá er ekki mikið um að vera. Ekki var mikið verslað en við fengum að fara upp og niður rúllustigann nokkrum sinnum Björgvini til mikillar ánægju. Hann var alsæll með þessa ferð og ekki síður vegna þess að við fórum í lest á leiðinni heim. Þvílíkt fjör.

Þegar við vorum nýkomin heim aftur þá var hringt af spítalanum og okkur tilkynnt að skurðlæknirinn okkar hafi getað rýmt til í stundaskránni sinni fyrir okkur og við fengum pláss á fimmtudaginn. Þetta var óvænt ánægja og við eigum við að innritast aftur á spítalann á morgun og er mæting kl 11:30.


Mikill léttir að dagsetningin sá ákveðin og að við þurfum ekki að bíða svona lengi þó svo að þessar stundir hafi verið mjög góðar hjá okkur og gott að geta verið saman án þess að þurfa að vera með súrefniskút í eftirdragi. En auðvitað er kvíði líka til staðar, þetta er stór aðgerð og fáum við að hitta skurðlæknirinn á morgun sem fer yfir aðgerðina með okkur, hvað og hvernig verður gert og hvernig verða næstu dagar á eftir.





Björgvin er búinn að vera mjög hress og borða vel. Hann er hrifnastur af pizzunni og við erum heppin að nóg er til af henni hér! :) Svona lítur eldhúsið út hérna á gistiheimilinu og gott er að slaka á og borða saman hér.

Kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

15 comments:

Óli Örn said...

Já við skulum bara ákveða það að þetta sé THE lausnin og að hann muni fá FRÁBÆRT líf eftir þetta!!! Baráttu kveðjur frá Óla frænda í Noregi!!! Ps. Sendi ykkur tonn af orku og fjall af kærleik ♥

Anonymous said...

Gott að þessu var flýtt. Vonum bara allt það besta og að aðgerðin skili tilætluðum árangri!
Bestu kveðjur úr Kef
Hrund

Anonymous said...

gott að þið eruð að komast að í þessari viku. Ekki eins löng biðstaða.Björgvin á eftir að standa sig vel eins og alltaf. Koss og knús Maja, Matti og Bryndís Milla

Sunna og Magnús said...

Gott að heyra að Björgvin er duglegur að borða og er hress.

Hann er alltaf jafn ótrúlega duglegur og þið bæði!

Risaknús frá Sverige
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Hann lítur svo vel út guttinn! :)

Frábært að þið þurfið ekki að bíða svona lengi og ég veit að hann massar þetta á morgun enda er hann mesti nagli sem ég þekki!

Bjarki

Anonymous said...

Ok, núna kemur þetta :)
Algerlega klár á því. Gangi ykkur svaka vel og varaðu þig bara, hann verður stærri en þú áður en þú veist af :)
knus Sigga

Anonymous said...

mikið er ég glöð að aðgerðin verður á morgun, það er svo erfitt að bíða og finna kvíðann ná tökum á sér. Hann er í bestu mögulegu höndum þessi kraftakarl....risaknús á ykkur, sigga maja og co

Anonymous said...

Frábært að biðin hjá ykkur hafi verið stytt svona. Litli stálkallinn hefur náð að safna smá kröftum utan spítalans og mun rúlla þessari aðgerð upp, engin spurning, sérstaklega með svona ofurmömmu sér við hlið! :)

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Gott að heyra að þetta sé núna, það er svo erfitt að bíða. Gaman er líka að heyra hvað hann er duglegur að borða, ég skil vel að pizza skuli vera í uppáhaldi, þekki þetta á mínu heimili.
Gangi ykkur vel á morgun, við munum hugsa til ykkar.
kveðja
Heiðrún og co.

Anonymous said...

Gangi ykkur vel á morgun. Vid verdum med hugann hjá ykkur eins og alltaf.
Kv Nina

Anonymous said...

Gott að þið þurfið ekki lengur að bíða eftir aðgerðinni. Frábært hvað Björgvin er duglegur að borða og undirbúa sig þannig vel fyrir aðgerðina. Hugsa til ykkar og sendi knús yfir hafið.
Bestu kveðjur Inga Huld

Óli said...

Gangi ykkur vel a morgun.
Kveðja fra Svölutjörn 49.

Anonymous said...

Gott að heyra að biðin verður styttri en þið hélduð. Gangi ykkur rosalega vel og við sendum góða strauma á morgun.

kv. Inga Birna og co.

Allý said...

úff ég fæ alveg kökkinn í hálsinn að sjá hvað hann er hress á myndunum! Vonandi mun þessi aðgerð gera honum gott svo lífið hans verði betra eins og hann á svo sannarlega skilið þessi litli snúlli minn ;* Gangi ykkur rosalega vel á morgun og ég hugsa hlýtt og stíft til ykkar ;*

Linda Karen said...

Hugsa til ykkar í dag og vona að aðgerðin gangi vel og eftirmálarnir verði góðir.

Þið eruð massalingar með hausinn í lagi ;)

Kramisar
Linda