Tuesday, May 17, 2011

Dagur 15 i Boston - Meira um fundinn

Ég var víst ekki nógu nákvæm í gær þegar ég skrifaði um fundinn stóra. En á fundinum var ákveðið að það skyldi farið í þessa aðgerð.

Ástæðan er sú að læknarnir telji að þetta geti hjálpað honum mikið. Líklegast mun hann hætta að erfiða svona mikið þegar hann andar og verður laus við sýkingar sem hafa verið að hrjá hann. Þessi vefur í neðra vinstra lunganu er ónýtur og ábyggilega eru bakteríur fastar í honum þrátt fyrir ítrekaðar sýklalyfjameðferðir. Þegar búið verður að skera hann úr þá mun vera ræktað úr honum og athugað hvort það séu vondar bakteríur þar.

Við spurðum nokkrar spurningar varðandi vöxtinn og voru læknarnir ekki með nein svör við því nema að þeir halda að við að fjarlægja þennan hluta lungans þá muni komast á jafnvægi á blóð- og loftflæði í lungunum, sem skiptir miklu máli og að þrýstingur í lungunum minnki. Hann verði laus við sýkingar og ef hann verður veikur þá á hann að geta náð sér upp úr því eins og frískt barn gerir.

Þannig að niðurstaðan var að jú eflaust getur þetta hjálpað honum varðandi vöxtinn og telja þeir að þrengingin í öndunarvegi og mjórri vinstri lungnapípan hafi ekki áhrif á hann. En stífni í vinstra efra hjartahólfi geti samt haft áhrif og er ekkert við því að gera. Þannig að við munum þurfa að bíða og sjá hvernig honum gengur eftir aðgerðina og hann mun einnig þurfa á vaxtahormón að halda þó svo að hann byrji að vaxa sjálfur þar sem hann getur aldrei unnið upp þá cm sem hann hefur misst af sjálfur.

Það munu verða gerðar fleiri rannsóknir þegar við leggjumst inn aftur á spítalann, læknarnir vilja fullvissa sig um að þeim sé ekkert að yfirsjást sem gæti verið lagað í leiðinni eða gæti haft mikil áhrif á heilsu hans. Enn hefur sjónin ekkert verið skoðuð en við ætlum að biðja um það í seinni hálfleik.

Þetta var einróma ákvörðun hjá læknunum að þetta væri rétt að gera og að ekki væri hægt að komast hjá því svo að hann gæti átt betra líf.

Vonandi skýrir þetta eitthvað :)

knús
Ásdís og Björgvin Arnar

10 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir góða skýrslu! :)

Anonymous said...

Elsku Ásdís mín, þakka þér kærlega fyrir útskýringarnar og fyrirgefðu hvað ég var eitthvað ekki alveg nógu jákvæð í fyrra commenti en þú ert algjör snillingur og hetja, ég bara get ekki ýmindað mér hvernig þetta væri allt saman án þín. Ekki það að ég sé að minnka hlut Atla í málinu en það ert nú þú sem ert með strákinn alla daga og mamma er nú mamma. Björgvin er bara svoooooo heppinn að eiga svona frábæra mömmu.
Þetta tekur allt svo ótrúlega langann tíma, maður er með hjartað í hálsinum og er að vonast til að heyra nýjar og góðar fréttir á hverjum degi, en þetta er nú bara aðeins flóknara en það, því miður. Verum ánægð yfir öllum sporum frammávið, hversu smá þau virðast vera geta þau reynst huge til lengri tíma.
Kærleikskveðjur frá Olg´ömmu

Anonymous said...

Hæ hæ skvís :)
Hann frændi minn hefur nú þurft að þola ýmislegt,litla skinnið og er svo DUGLEGUR að hálfa væri nóg!! ♥
Þið, foreldrarnir, eruð LÍKA GEGGJAÐ DUGLEG!! :) ♥

Stórt- og mikið BATA-KNÚST til litla frænda og fullt af ORKU! :)

og svo fáið þið öll auðvitað nokkra fingurkossa frá mér líka:) hehehe

Knús í hús
María Ósk frænka

Allý said...

Loksins get ég kommentað!! Mikið er ég ánægð að heyra að allt er að ganga í rétta átt um að eitthvað verði gert til að snúllanum líði betur. Mikill söknuður héðan frá yfir hafið og skilaðu sérstakri kveðju frá mér til Björgvins ;*;* Bestu knús kveðjur
Allý

Anonymous said...

Takk skvís fyrir þetta, gott að geta fylgst nákvæmlega með hvað er að gerast og gott að verið sé að skoða alla hluti :)

Það verður frábært fyrir prinsinn að losna við þessu miklu veikindi í kjölfar venjulegra barnapesta.

Vonandi eigið þið góðan frídag og um að gera að reyna að róa hugann og dreifa hugsununum með fallegum fötum. Leyfa orkunni að endurhlaða sig og Björgvin að styrkjast enn meira fyrir næstu áskorun.

Anonymous said...

p.s. kveðja Ester :)

Solla said...

Hæ þið

vona að þú sért búin að kaupa þér eitthvað æðislegt...

8 læknar hljóta samanlagt að vita alveg slatta og ef þetta er einróma niðurstaða þá verður þetta eflaust til mikils bata fyrir litla krúttið. Ef hann losnar við að fá þessa sýkingar og lungnabólgu sí og æ þá verður hann örugglega fljótur að braggast

Solla

Anonymous said...

Flott að það sé amk einhver botn að komast í þetta mál. Ef vefurinn er skemmdur þá er hætt við að sýkingar séu mjög tíðir gestir eins og með ónýta hálskirtla. Vonandi bætir þetta líf hans og ykkar allra.

Baráttukveðjur að norðan!

kv
Stebbi.

Anonymous said...

Elsku Ásdís og Björgvin.

Gott að heyra að það sé einhver lausn komin og vona ég svo innilega að þetta eigi eftir að hjálpa Björgvini að öðlast betra líf !

Gott að geta fylgst með ykkur og sjá myndir af ykkur :*

Knús. Eyrún frænka og Co

Anonymous said...

Þið eruð öll svo ótrúlega dugleg og jákvæð.. gaman að sjá myndir af krúttinu gera eitthvað skemmtilegt. Vonandi verða þær fleiri þannig.
Knús og baráttukveðjur
Inga Birna