Fundurinn var kl 14 í dag og sátu 8 læknar fundinn með Gylfa, lækninum okkar að heiman. Það var farið yfir hvaða gögn liggja fyrir og var tekin sú ákvörðun að það er rétt að næsta skref verði að fjarlægja neðri hluta vinstra lungans. Þetta er mikil aðgerð en nauðsynleg og mun vonandi verða honum til góðs.
Barnahjartaskurðlæknirinn hans Björgvins, Del Nido, mun framkvæma þessa aðgerð og mun hún taka 4-5 tíma þegar að því kemur. Ekki var hægt að finna tíma í þessari viku og verðum við þá að bíða fram í næstu viku en fáum að vita dagsetningu á morgun eða hinn. Það er dálítið erfitt að vera bara hér og bíða en við notum tíma í að byggja strákinn upp sem er mjög lítill í sér og á dálítið erfitt eftir fyrri hálfleik.
Björgvini fannst Gylfi alveg frábær þar sem hann lagaði verðandi neyðarástand í gær þegar hann kom. Amma og afi sendu Gylfa með fimm pakka af grænum ópal þar sem mamman bjóst ekki alveg við svona langri dvöl hér í Boston þá voru bara nokkur ópöl eftir. Gylfi var algjör hetja í augunum hans Björgvins og hann vildi bara leiða hann og vera hjá honum og passaði upp á að hann færi nú ekki án okkar :)
Veðrið hér er ekki gott, rigning og þvílíkt kalt, ekki bjóst maður við því á þessum árstíma. Ætli það verði ekki farið í smá hugleiðslu á morgun (lesist sem búðarráp) og athugað með utanyfirflík ;)
Kveðja frá okkur hér í Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
7 comments:
Shop till you drop! ;)
Bjarki
Og aftur hittir Bjarki naglann á höfuðið! Svona hugleiðsla er bara góð, vildi bara að ég væri komin til að hugleiða smá með þér! Frábært að fá svona hressingu að heiman, opal bætir, kætir og hressir!
Kv. Nína
Hæ elskan,
ég var nú að vona að eitthvað meira kæmi útúr fundinum. Við vissum það fyrir að neðri hluti lungans yrði fjarlægður.....en hvað með allt hitt? Hvað með hjartalokuna? Hvað með sjónina? Hvað með það að hann vex ekki? Ef ég er hálf vonsvikin hvernig líður þér þá og ykkur báðum!?!?!? Fyrirgefðu mér en ég hafði gert mér svo miklar vonir um þennann fund, hélt að þeir myndu komast að einhverju sem þeim hafði sést fyrir hingað til.
Getur það verið að lungað sé að gera allar þessar skemmdir á heilsufari Björgvins?
Vonandi fer veðráttan að lagast, vantaði bara leiðindaveður í þokkabótina!!!!
Love you
Olg´amma
Það sem Bjarki sagði ;)
risaknús!
Sunna og Magnús
ég verð nú bara að segja að þú lítur rosalega vel út Ásdís þó þú sért búin að upplifa svefnlausa nætur og mikið álag. Það vantar ekki dugnaðinn hjá þér kona. Vonandi komist þið sem fyrst að í þessa aðgerð, erfiðast af öllu að vera í biðstöðu.
koss maja
Frábært að heyra að hugsanleg lausn sé í sjónmáli. Nú er um að gera að njóta þess að vera frá spítalanum í nokkra daga. Bestu kveðjur til ykkar allra, Magnús.
Nú er bara að hlaða batteríin fyrir næstu baráttu og ekkert verra að gera það í næsta molli!
Hugsa að Visa kortið nái að halda á þér hita í einhvern tíma eftir góða hugleiðslu :)
Kv,
Hrannar
Post a Comment