Monday, May 16, 2011

Dagur 14 í Boston - Hálfleikur

Loksins fengum við útskrift og nú er kominn hálfleikur hjá okkur, tími til að slaka á og gera eitthvað skemmtilegt, njóta þess að vera ekki á spítalanum í þessa nokkra daga sem við fáum í pásu.


















Það er alltaf dálítið mál að útskrifast, þarf að fara yfir öll lyf og nokkur þeirra var Björgvin ekki á þegar við komum hingað og þurftum við að fara í apótek með lyfseðlana eftir útskrift. Svo er dótið sem fylgir manni alltaf svo gífurlegt, eins og við séum búin að vera á spítalanum í marga mánuði.


Björgvin var svo ánægður að vera kominn út af spítalanum og á gistiheimili að hann vildi strax fara að kúra í nýja rúminu, svakalegt stuð. Við skelltum okkur í stóra göngu um borgina og Björgvin svaf í kerrunni og svo fórum við á Cheesecake factory og Björgvin hámaði í sig pizzu, í annað skiptið í dag! :)



Gylfi læknir kom til okkar áðan, hann var að fylgja barni til hingað og mun því geta verið með okkur á mikilvæga fundinum á morgun. Við erum búin að undirbúa okkur fyrir hann, skrifa niður þær spurningar sem við viljum fá svör við.

Við vonumst eftir að einhver áætlun fæðist á morgun svo að við vitum næstu skref og hvenær þau verði tekin.

Kær kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

23 comments:

Anonymous said...

Gangi ykkur vel á fundinum í dag. Alveg dásamlegt ad sjá hann án súrefnisslöngunnar!
Kv Nina

Anonymous said...

Vá hvað er gott að sjá hann utan spítalans manni finnst bara eins og hann sé allur hressari og hraustari :)
Gangi ykkur rosalega vel á fundinum í dag, frábært ef að Gylfi nær að fara með ykkur :) :)

Knús og kram Kveðja Ester

Kvartmann said...

Gangi ykkur vel á fundinum. Það verður gott ef það næst að setja niður einhverja áætlun og vonandi fáið þið svör við þessum spurningum!

Hef fulla trú á að nú fari þetta allt að komast á betra ról!

Kv,
Hrafn

Anonymous said...

Það skín í gegn á myndunum hvað hann er glaður að vera kominn af spítalanum :)
Gangi ykkur rosalega vel á fundinum!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Alveg frábært að sjá myndir af Björgvini svona án allra tækja og slangna. Gangi ykkur vel á fundinum. Held að þetta sé allt á réttri leið núna, knús á ykkur hetjurnar
kveðja
Heiðrún

Anonymous said...

Flottur hann frændi minn :) Hlakka til að hitta hann. Hulda María er líka voða spennt að leika við hann :)
Kv.Svölutjörn 1

Þórey Arna said...

Góða skemmtun í hálfleiknum - þið komið svo enn sterkari inn á í seinni hálfleik!!

Kærar kveðjur

Anonymous said...

Frábært að sjá hvað hann lítur miklu betur út litla krílið. Að fá smá pásu er örugglega það besta sem gat komið fyrir ykkur nú, smá endurnæring! Gott að læknirinn ykkar geti verið með á fundinum. Hlakka til að heyra hvað kemur útúr þessum fundi. Njótið pásunnar elskurnar mínar. Olg´amma er alltaf með ykkur!
Love you <3

Anonymous said...

Frábært að geta notið sín aðeins utan spítalans - þið eigið það svo sannarlega skilið. Gangi ykkur sem allra best á fundinum.
Knús og koss, Ragga

Sunna og Magnús said...

Yndislegt að sjá Björgvin alveg snúrulausan og svona glaðan.

Gangi ykkur vel á fundinum og munið að fara vel með ykkur!

Risaknús
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Gott að þú þurftir svo ekki að fara ein á Cheesecake factory eftir allt saman :)

Bjarki

Anonymous said...

gott að þið fáið smá pásu til að hlaða batteríin. Gangi ykkur vel á fundinum í dag, koss og knús.
Maja, Matti og Bryndís Milla

Anonymous said...

Björgvin er algjör hetja! Ótrúlegt að lesa þetta allt saman. Gangi ykkur rosalega vel á morgun =)

Kveðja (Loan) Steini.

Elin said...

Gangi ykkur vel í dag á fundinum. Gaman að sjá Björgvin svona hressari og glaðan.

Librakveðjur
Elín

Anonymous said...

Hæ hæ Ásdís mín gangi ykkur vel á fundinum í dag og vona að þið fáið góðar fréttir.Björgvin er svo flottur á myndunum svo hress og glaður að sjá.Hafið það ætið sem best og sendi ykkur knús ogg kossa. Hulda frænka.

Anonymous said...

En hvað er gaman að sjá hann svona glaðan á myndunum lausan við allar slöngur o.þ.h. Gangi ykkur sem best og mikið hlýtur það að vera mikill stuðningur að læknirinn skulu vera á staðnum. Eigið góðan dag. kveðja Asa C og Co

Sirrý said...

Gangi ykkur rosa vel á morgun, poj poj poj. Við hugsum til ykkar ;)

Kossar
Sirrý og co

Anonymous said...

Hlakka til að heyra hvað kemur útúr þessu hjá læknunum á fundinum. Ætla að vaka aðeins meira í von um að sjá nýtt blog frá þér:)
Þúsund kossar og vonarkveðjur frá Olg´ömmu

Anonymous said...

Nú fer þetta allt að koma - yndislegt að sjá myndirnar af ykkur. Hugsum til ykkar og á kvöldin þegar við Helga Rut förum með bænirnar biður hún Guð að passa strákinn sem er á spítalanum í útlandinu :) Batakveðjur - Fjóla og dætur

Anonymous said...

Vonarkveðjurnar voru náttúrulega meintar í sambandi við þær vonir sem við gerum okkur útaf þessum frábæru læknum sem eru að ákveða um framtíð litla drengsins okkar. Vona að það komi eitthvað upp á fundinum sem upplýsir læknana og geri það að verkum að þeir geti gert líf og heilsu Björgvins auðveldara.
Bið fyrir ykkur
Olg´amma

Anonymous said...

Yndislegt að sjá litla vininn okkar svona brosandi með enga slöngu... við bíðum spennt eftir niðurstöðu fundarins og vonum það allra besta fyrir hetjuna okkar.
baráttuknús yfir hafið.
kveðja frá Holti
Kristín

Anonymous said...

Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með. Dásamlegt að sjá að hann án súrefnisins. Vonandi gengur fundurinn vel.

kv. Inga Birna og co.

Anonymous said...

Hugsa til ykkar svo mikið.

P.s. Hann er svo flottur. Gaman að sjá hann með ekkert súrefni :)

Gangi ykkur vel með framhaldið.

Love you!

Eyrún frænka, Helgi, Elvar Berg og Stjarna