Við áttum að útskrifast í dag og fara á gistiheimilið þangað til við fáum að vita hvenær aðgerðin verður framkvæmd og hvenær við eigum að innritast aftur.
En þá datt læknunum í hug að gefa Björgvini magasýrulyf sem hafði þau áhrif í gærkvöldi að hann kastaði upp frá kl 22 - 4 í nótt. Hann var alveg uppgefinn og í morgun þá vildi hann bara liggja fyrir og leit ekki vel út. Ég neitaði að gefa honum þetta lyf aftur og þá komu þeir með annað lyf sem virkar svipað og héldu að það myndi virka betur. En það hafði alveg sömu áhrif á hann og hann byrjaði að kasta upp á ný. Það endaði með því að læknanir gáfu honum lyf við ógleðinni og hann svaf í þónokkra stund og vaknaði svo svaka hress og er búinn að vera þannig í allan dag.
Það var yndislegt að sjá hann svona kátan og hressan, langt síðan seinast. Hann gekk smá um og svo fórum við á rúntinn í babú bílnum um allan spítala eins og við vorum vön að gera á Barnaspítalanum. Það var mikið fjör. Svo borðaði hann fullt af kjúklingi í kvöldmatinn og söng hástöfum með Rauðhettu og úlfinum.
Við fáum vonandi að útskrifast á morgun í staðinn. Það spáir ekki góðu veðri hér á morgun, rigningu og skemmtilegheitum en við verðum með sól í hjarta og ætlum að reyna að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera innandyra.
Köstin eru á undanhaldi, það komu tvö í morgun, rosalega væg þar sem hann var svo þreyttur og leið svo illa. Ekkert sást svo til þeirra restina af deginum, sem betur fer.
Við finnum fyrir því að það er helgi, fáir á spítalanum og helstu sérfræðingarnir í fríi. Enda er svo sem ekkert að gerast hjá okkur fyrr en á mánudaginn, þegar fundurinn verður. Við erum bara fegin að komast aðeins af spítalanum og að Björgvin sé svona hress. Engin köst, ekkert súrefni, engar snúrur og slöngur, maður bara trúir þessu varla!
Því miður eru engar myndir í dag, ég gleymdi snúrunni í myndavélina á spítalanum. Lofa myndum á morgun.
Kveðja frá Ásdísi og Björgvini Arnari.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Gaman ad heyra hvad litla hetjan okkar er kát og hress midad vid allt sem gengur á. Hann er nagli eins og mamma sín!
Kv Nina
Tek undir með Nínu!
Frábært að ykkar umhyggja er það sem er að lækna köstin meðan helstu sérfræðingar í heimi klóruðu sér bara í hausnum :)
Bjarki
Vona að þið eigið góðan dag í dag og fáið óskir ykkar uppfylltar :-) Hlýjar hugsanir og kveðjur til ykkar. Hanna María
gott að heyra að köstin séu á undanhaldi og Björgvin heppin að eiga svona góða mömmu eins og þig Ásdís mín. Knús og hlýir straumar
kveðja
Heiðrún og co.
Gott að heyra að litla skinnið sé hress og kátur þrátt fyrir allt. Og þú sjálf jákvæð og gangandi eins og alltaf. Megi Guð gefa ykkur styrk til að halda svona áfram. Á meðan eruð þið alltaf í mínum huga. Kossar og faðml-g frá Olg´ömmu
Frábært að hann sé orðinn svona hress :) Hann nær þá vonandi að safna kröftum fyrir aðgerðina sem er framundan!
Kv,
Hrannar
gott að heyra að matarlystin var góð eftir rússíbanareiðina í mallakút. Við trúum því að þetta sé allt á réttri leið. kv. sigga maja og co
Gott að fylgjast með ykkur Ásdís mín. Hugsa mikið til ykkar og gott að Björgvin Arnar er að plumma sig svo vel miða við allt. Kossar og risaknús til ykkar frá okkur í Gautaborg. Hlökkum til að hitta ykkur í sumar.
Sirrý og co
Post a Comment