Saturday, May 14, 2011

Dagur 12 í Boston - Köstin næstum farin!

Við áttum svo góðan dag í dag, við fengum að fara út af spítalanum í gönguferð með Björgvin þar sem læknarnir gátu ekki séð að þetta væru flog og fóru að trúa því að þetta væri bara álag og kannski aukaverkun af sterunum þar sem þeir hafa mikil áhrif á andlegu hliðina líka. Nú hefur Björgvin verið laus við þá í nokkra daga og þeir eru að renna út úr líkamanum og svo vildum við ekki láta hann í eina rannsókn í dag sem átti að athuga hve mörgum kaloríum hann eyðir í að anda og reikna út hvað hann þarf mikið á dag til að halda líkamsþyngd. Það var því hætt við hana og verður hún gerð einhvern tímann í næstu viku í staðinn.


Köstin voru færri í nótt og svo kom löng pása frá 8:45 í morgun og svo kom eitt vægt kl 16:00. Við tókum þá pól í hæðina að vera alltaf annað hvort hjá honum uppi í rúmi og halda utan um hann þegar hann er vakandi svo að hann finni vernd og öryggi. Þetta hefur allt skilað sér og okkur fannst hann hafa rosalega gott af því að fara út í dag.

























Hann var hress en dálítið þreyttur eftir daginn og svo settum við hann í bað og tókum alla plástra af honum og síðasta legginn og hann er svo fínn og sætur núna. Sjá þetta litla kríli þegar hann var kominn úr fötunum, svo berskjaldaður og hræddur, hann hafði svo gott af þessu :)

Að öllum líkindum fáum við að fara á gistiheimilið á morgun og vera þangað til að stóri fundurinn á mánudaginn verður búinn og næstu skref verða ákveðin.

Smá slúður um herbergisfélagann okkar fyrrverandi, nú erum við sko í einkastofu, en það var kona með lítinn strák í sama herbergi og við. Hún var algjörlega óþolandi, byrjaði að ganga frá öllu og búa um kl hálf sjö um morgunin og lætin voru svo gífurleg og ekki alveg að slá í gegn hjá minni eftir erfiðustu nóttina mína hérna. Svo heyrðist í henni tala í símann og segja að hún hafi verið að sleppa úr fangelsi vegna þess að hún var að eignast þetta barn sem var svo veikt. Eins gott að ég fór ekki að rífa mig við hana! :)

Tilfinningin var ólýsanlega góð að ganga út af sjúkrahúsinu með litla drenginn minn í kerrunni sinni, hjartað mitt sprakk næstum úr gleði. Við fórum á TGI Fridays að borða og svo í göngu um borgina og í einn garð sem er rétt hjá spítalanum. Frábær dagur og loksins skref í rétta átt.

Gleðikveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar

12 comments:

Tinna said...

Æðislegt! frábært, verst að við getum ekki sent íþróttaálfinn í heimsókn til ykkar út :)

Anonymous said...

Vá hvað það var gaman að fá svona góðar fréttir! Njótið þess að fá frí frá spítalanum í nokkra daga :)
Knús Dagbjört og co

Anonymous said...

Snilld!
Kv Nina

Anonymous said...

Yndislegt að fá svona dag!
Kv.
Hrund

Anonymous said...

Frábært að heyra :)
Vonandi liggur vegurinn bara uppávið núna!

Kv
Hrannar

Anonymous said...

Frábært að heyra... mikið standið þið ykkur vel, gott að sjá myndir af litlu hetjunni fyrir utan sjúkrahúsið. Gangi ykkur vel um helgina og ég vona að mánudagurinn gefi góða niðurstöðu :)
knús á ykkur frá öllum á Holti
Kristín

Anonymous said...

Gott að heyra góðar fréttir :) yndislegt að sjá Björgvin laus við slöngur og annað.. njótið sem allra best :)
knús og koss. R

Anonymous said...

Yndislegt að heyra að þið hafið fengið smá frí frá stressinu og fengið góðan dag, það endurnærir ykkur örugglega og þið takist betur á við það sem þið þurfið að takast á við.
Er stöðugt með ykkur í anda elskurnar mínar, sendi ykkur þúsund kossa og megaknús
Olg´amma

Óli Örn said...

Er svo stoltur af ykkur að hjartað blómstrar!!! :O)

Er svo ánægður með að þið takið stjórnina og hlustið á ykkar innri rödd og að það er hlustað á ykkur :O)

Baráttu kveðjur og STÓRT KNÚS frá Óla frænda í Noregi ♥

Anonymous said...

Dásamlegt að heyra hvað dagurinn var góður- eins gott að þú varst ekkert að rífast í kellunni á herberginu! Risafaðmlag á ykkur, Kv. sigga maja og co.

Anonymous said...

Takk Ásdís enn og aftur fyrir að leyfa okkur að fylgjast svona vel með. Fer hér inn á hverjum degi! Baráttukveðjur á litlu hetjuna og "riddarasveinana" hans :)
knús
Lóa

Anonymous said...

Hæhæ Ásdís og Björgvin Arnar..;)
Æðislegt hvað gengur vel hjá ykkur, það verður gaman að sjá prinsinn leika sér á flotta pallinum þegar þið komið heim..;)
kv Bára Svölutjörn 7