Köstin héldu áfram í alla nótt á klukkutíma fresti svo að þessi nótt var ótrúlega erfið og ekki mikið var sofið hjá mömmunni. Það er ekki erfitt að falla í hræðslukast yfir þessu þegar við erum á besta barnasjúkrahúsi í heiminum og læknarnir klóra sér í hausnum yfir þessu, þá verður maður svolítið óöruggur. En taugalæknarnir voru búnir að fara yfir heilalínuritið frá því í gær og gátu ekki séð að þetta væru venjuleg flog en þeir áttu eftir að fara yfir þau sem gerðust í nótt og við eigum eftir að heyra meira um þetta á morgun.
Við gripum í taumana og ákváðum að hann fengi engin lyf sem hann kom ekki á til Boston, taka það af sem hefur verið að bætast á hann til að reyna að ná því ástandi aftur sem hann kom í. Læknarnir tóku vel í það og einnig höfum ekki leyft blóðprufur í dag þar sem okkur fannst þær óþarfi, við tókum stöðuna á blóðþynningunni sjálf með okkar tæki. Það gæti alveg verið að þetta áreiti og þessi auka lyf séu ástæðan fyrir þessum köstum, við vitum það ekki ennþá.
Einnig voru gerðar fleiri rannsóknir í dag. Heilalínurritið var stoppað í dag en nemarnir voru ekki teknir af höfðinu á honum þar sem hann þurfti að fara í svefnrannsókn í nótt og sömu nemar notaðir. Hann fór í röntgen mynd af hálsi til að athuga hvort það væri eitthvað þar sem er að triggera þessi köst þar sem hann fer alltaf út með tunguna á meðan. Svo var líka tekin mynd af honum kyngja sérstökum vökva til að athuga hvort eitthvað af honum myndi fara í lungun, svoleiðis getur valdið miklum sýkingum í lungum en það kom neikvætt út sem betur fer.
Fleiri rannsóknir verða svo ekki gerðar í bili og getur verið að við fáum að fara út af spítalanum til að athuga hvort hann lagist af þessum köstum, reyna að koma honum út í venjulegt umhverfi. Okkur finnst að læknarnir séu farnir að halda það sama og við að hann sé að fá kvíðaköst af álagi. En þetta er erfitt að finna ekkert út úr þessu og að horfa upp á hann ganga í gegnum þetta.
Við fluttum á gistiheimili á vegum spítalans í dag og það er ósköp kósý og tekur um 8 mínútur að labba frá spítalanum, mjög gott að fá smá hreyfingu og einnig kostar þetta svo miklu minna en hótel og einnig voru vandræði að fá pláss á hótelinu þar sem mikil traffík er í borginni.
Dagarnir eru alveg búnir að vera pakkaðir, margar rannsóknir og hinir og þessir sérfræðingar að tala við okkur. Ég hef varla haft tíma til að hringja heim svo að gott er að skrifa blogg til að koma fréttum til allra með einni færslu.
Kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar
4 comments:
Flott mynd af Björgvini - ótrúlegt að svona stór voffi skuli koma í heimsókn á spítalann :) frábært :)
Þið vitið hvað er honum fyrir bestu þekkið hann best knús
Kveðja Ester og co
Elsku Ásdís mín,
það er nú ekki eðlilegt hvað þú ert frábær mamma. Að þú takir frammí fyrir hendurnar á læknunum og að þeir láti gott heita þýðir nú bara það að það er kannski ekki alvitlaust það sem þú/þið stingið uppá. Ég er þá að meina þetta með meðölin aðallega. Ég er sannfærð um að þú finnur á þér það sem er best fyrir Björgvin, finnur hversu langt er hægt að ganga áður en það verður að taka í taumana o.s.frv. í sambandi við blóðprufur og allskonar "pyntingar" á litlu elskunni okkar. Ég styð þig og ykkur öll í anda og ég dáist alltaf að hversu vel þú stendur þig!
Innilegar væntumþykjukveðjur frá Olg´ömmu <3
Elsku Ásdís og Björgvin, það er aldeilis lagt mikið á ykkur. Þið eruð alveg ótrúlega dugleg og sterk. Við Siggi sendum okkar bestu batakveðjur og knús yfir til ykkar-Inga Huld
Flottur Winston, það hefur verið gaman fyrir Björgvin að fá einn svona loðinn til í heimsókn í stað allra læknanna.
Baráttukveðjur!
Post a Comment