Sunday, May 1, 2011

Boston í dag

Jæja nú er komið að því, við förum til Boston í dag. Undirbúningurinn er í hámarki, verið er að baða og klæða og setja niður í tösku. Aðal atriðið er að muna eftir öllum tækjum og tólum sem þarf og að öll lyfin séu með í för. Annað er hægt að kaupa í Boston, haldiði það ekki?? :)

Ég mun reyna að vera dugleg að blogga fyrir þá sem eru að fylgjast með og endilega að kvitta fyrir til að við fáum að vita hverjir eru að fylgjast með okkur, það hlýjar okkur um hjartarætur!

Baráttukveðjur frá mæðginunum úr Svölutjörn
Ásdís og Björgvin Arnar

6 comments:

Anonymous said...

Gangi ykkur alveg rosalega vel!
Baráttukveðjur :)

Kv, Hrannar

Anonymous said...

Gangi ykkur vel! Hugur okkar verður hjá ykkur næstu dagana!!!
Risa knús Dagbjört og co

Anonymous said...

mér þikir leitt að þið eruð að fara
til bostons. gangið ikkur vel.

kveðja ragnhildur sara og co

Anonymous said...

Hugurinn er hjá ykkur í baráttunni eins og alltaf elsku mæðgin.

baráttukveðjur, Bjarki

Anonymous said...

Hugsa til ykkar og takk fyrir að vera svona dugleg að blogga og leyfa okkur að fylgjast með:-)
Bestu kveðjur
Inga Huld

Allý said...

Knús á ykkur og gangi ykkur rosalega vel! Ég mun hugsa mjög hlýtt til ykkar. Knús og kossar til ykkar ;*

KV
Allý