Monday, August 12, 2013

Enn ein lotan að hefjast á spítalanum

Á morgun förum við á Barnaspítalann í rannsóknir. Öndunin hjá Björgvini hefur verið að hraka, þ.e. hann þarf á meiri súrefni að halda en áður. Einnig hefur hann verið að fá eitthvað yfir sig þrisvar sinnum sem við getum ekki útskýrt. Þá verður hann alveg máttlaus í fótunum, blár á vörum og virðist eiga erfitt með að ná andanum. Hjartslátturinn lækkar og líklegast blóðþrýstingurinn (erum ekki með tæki til að mæla en sjúkraflutningsmennirnir mældu hann þegar þetta gerðist á leikskólanum).

Við vitum ekki alveg hvernig skipulagið verður næstu daga en það liggur fyrir að fara í tölvusneiðmynd af lungum, hjartaómskoðun og svefnrannsókn. Einnig finnst þeim mikilvægt að fá að sjá hann og fylgjast með honum sérstaklega yfir nótt.

Alveg kominn tími á að kíkja á ástandið hjá honum, nú er sumarfríið búið. Mikið er gott að eiga ömmu og afa sem passa Eyrúnu Örnu á meðan ég verð með Björgvini á spítalanum.














Björgvin er búinn að vera hjá pabba sínum yfir helgina, get ekki beðið eftir að hitta hann á morgun og knúsa vel. Hér er hann með systur sinni á góðum degi heima á pallinum. Dásamleg! :-)

Baráttukveðja úr Svölutjörn
Ásdís, Björgvin Arnar og Eyrún Arna

9 comments:

Anonymous said...

Gangi ykkur svaka vel, hugurinn er með ykkur.

Frábær mynd :-)

Baráttukveðjur, Bjarki

Anonymous said...

Gangi ykkur vel í dag
bkv
Heiðrún

Anonymous said...

Gangi ykkur vel í dag
Kveðja Maja og co.

Anonymous said...

Gangi ykkur rosa vel, baráttukveðjur!

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Gangi ykkur vel, hugsa til ykkar.
Kveðja, Fjóla

Anonymous said...

Vonandi gengur allt vel hjá ykkur risa knús á ykkur hetjurnar mínar hugur minn er hjá ykkur.
Kveðja Ester og co

Unknown said...

Gangi ykkur vel elsku Ásdís og Björgvin.
kv. María, Benni og co

Linda said...

Þau eru alveg yndisleg systkinin! Gangi ykkur rosalega vel.
Kv.
Linda & Sindri

Sunnhildur said...

Elsku þið, gangi ykkur svo vel í þessu öllu saman. Við hugsum til ykkar.

Baráttukveðjur og knús og kram frá Sverige
Sunna og co