Björgvin Arnar hefur verið dálítið slappur í sumar. Kvef hefur verið að herja á hann og hann er mjög lengi að ná því úr sér. Veðrið hefur heldur ekki verið að gera okkur neinn greiða. Hann hefur lítið getað verið úti til að hreyfa sig og fá frískt loft.
Björgvin fór til pabba síns í tvær vikur og átti góðan tíma hjá honum. Þeir fóru meðal annars að veiða, húsdýragarðinn, Slakka og svo í strætó. Að fara í strætó finnst Björgvini vera algjört ævintýri,
Það tekur á að finna eitthvað að gera alla daga. Dagarnir fara í að horfa á barnatímann, teikna á töfluna, fara í bað, föndra, hlusta á tónlist og sögur, fara á rúntinn, leika með lestina o.fl. Þegar sumarfríið er búið á leikskólanum þá fór Björgvin í nokkra tíma til að hitta krakka og dreifa huganum aðeins.
Í gær þá fengu leikskólakennararnir aðeins að finna fyrir veikindum Björgvins þegar hann átti erfitt með að anda og varð blár í framan, missti alveg máttinn í fótunum og leið mjög illa. Þær urðu mjög hræddar og kölluðu á sjúkrabíl og hringdu svo í mig. Sem betur fer var ég á leiðinni heim og gat brunað beinustu leið á leikskólann. Björgvin var búinn að jafna sig að mest þegar ég kom og sagði við mig "Ég veit ekki hvað gerðist mamma en mér líður ekki sem best". Litla krúttið mitt!
Gylfi læknir ákvað að setja hann á kraftmikinn steraskammt til að hjálpa honum með öndun. Það versta er að sterarnir fara mjög illa í hann. Hann fær þessi svokölluðu köst (episodes) sem eru frekar slæm. Björgvin þarf orðið 4 lítra af súrefni og aðeins rúmlega á nóttunni þegar hann sefur. Á þriðjudaginn mun Björgvin leggjast inn á Barnaspítalann og gangast undir rannsóknir.
Björgvin bað mömmu sína um að kaupa fleiri lestarvagna í IKEA sem hún fór og gerði í dag :)
Það eru engin orð sem geta lýst því hve dásamlegur drengur hann Björgvin Arnar er. Hann er svo ljúfur og góður og hlýr. Hvernig hann kemur við systur sína er einstakt. Ég hef aldrei séð barn fara svona varlega að öðru barni.
Ástarkveðja
Ásdís, Björgvin Arnar og Eyrún Arna
Thursday, August 8, 2013
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

4 comments:
Hann er svo einstakur og ekki að ástæðulausu, börn læra sko það sem fyrir þeim er haft ;-)
Knús Bjarki
Duglegi Björgvin og duglega Ásdís!
Hrund
Björgvin er svo mikill sjarmör, bataknús til ykkar :)
Kveðja
Bylgja Dögg
Elsku Björgvin fær mínar sterkustu óskir um betri líðan svo hann geti notið sín og leikið sér þetta ofurkrútt sem þú átt Ásdís. Mikið lagt á hann sem hann virðist takast á við með ótrúlegu jafnaðargeði. Kveðja líka til Eyrúnar krúttu.
Solla og gengið
Post a Comment