Tuesday, June 7, 2011

Komin heim frá Boston

Við komum heim í gærmorgun og tilfinningin var svo góð þegar ég gekk með Björgvin upp landganginn. Það er svo skrítið að vera bara allt í einu komin heim og lífið að hrökkva í sinn vanagang eftir allt sem hefur gengið á. En sem betur fer er það bara þannig :)

Björgvin í lestinni.
Við fengum aðstoð á flugvellinum í Boston til að koma okkur að hliðinu, þegar við komum með leigubílunum (þurftum tvo vegna mikils farangurs!) þá stóð kona með nafninu hans Björgvins á skilti. Hún fylgdi okkur í innritun og í gegnum tollinn. Þvílíkur munur þar sem við þurftum ekki að bíða í neinni röð og fengum afgreiðslu strax.


Allt gekk svo vel í flugvélinni þannig að Björgvin þurfti ekkert súrefni alla leiðina. Ég verð nú að viðurkenna að ég var mjög stressuð fyrstu tvo tímana af fluginu og leit varla af honum til að fylgjast með merkjum um súrefnisleysi. En svo fór ég að slaka á og var ekkert smá ánægð með árangurinn hjá litla guttanum mínum.

Hann náði svo að sofa vel í nótt og hvíla sig og er búinn að borða ágætlega og því var mikill munur á honum frá því í gær. Hann var orkumeiri og var stöðugri þegar hann gekk. Ég hef trú á því að hann verði orðinn miklu betri í lok vikunnar. Þó svo að bataferlið muni taka 6-8 vikur þá munar nú um hvern dag sem líður.

Kær kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

10 comments:

Anonymous said...

Velkomin heim gott að vera búinn að fá ykkur aftur

Anonymous said...

Hann verður sennilega fljótur að
jafna sig!
Kv. Nína

Anonymous said...

Velkomin heim:-)
kveðja Inga Huld

Sunna og Magnús said...

Home sweet home :)
Risaknús til ykkar frá Stokkhólmi, Björgvin hörkutól verður örugglega fljótur að jafna sig.

Sunna og Magnús

Anonymous said...

Æðislegt að þið eruð komin heim:)
Gangi ykkur vel í bataferlinu.
Hilsen frá Aarhus
Bylgja Dögg

Anonymous said...

Velkomin heim mín kæru! Hlakka til að hitta ykkur! Knús, Hanna María

Anonymous said...

Frábært að ferðin heim gekk svona vel og allt sé að smella saman hjá ykkur mín kæra. Hlakka rosa til að hitta þig vonandi á þriðjudaginn ,)

Kossar
Sirrý

Anonymous said...

Heima er best :)

Kv,
Hrannar

Linda Karen said...

Hjartanlega velkomin heim naglar!!! Gott að heyra hvað heimferðin tókst vel ;)

Anonymous said...

Velkomin heim! Kv. Guðrún Þóra