Það eru bara búin að vera rólegheit hjá okkur á spítalanum í dag en veðrið er önnur saga, tornado viðvörun og þrumur og eldingar, allt crazy :)
Engin dagskrá var í dag nema að fylgjast með blóðþynningargildinu sem var ennþá of lágt og Björgvin hefur verið að fá blóðþynningarsprautur í lærið á 12 tíma fresti. En í fyrsta sinn var gildið á uppleið áðan svo að vonandi þarf hann bara að fá sprautu í nótt og svo ekki oftar í bili.
Eina rannsóknin sem er eftir er Kaloríurannsókn, á að mæla hve mörgum kaloríum hann er að eyða. Hann þarf að fasta í 4 tíma fyrir þessa rannsókn og ekki var hægt að fara í hana fyrr en kl 13 á morgun. Svo þarf hann að vera með höfuðið inn í einhverjum kassa í hálftíma til að þetta virki, er ekki alveg að sjá það gerast.
Þar sem Björgvin er frekar viðkvæmur og slæmur á taugum eftir allt þetta þá höfum við ákveðið að leggja þetta ekki á hann. Ekki er víst að þetta takist og miðað við álagið fyrir þetta þá fannst okkur þetta ekki vera þess virði.
Við fáum því vonandi að útskrifast á morgun og höldum í vonina að svo verði, kemur betur í ljós á morgun. Það er eiginlega með ólíkindum að hugsa til baka og líta yfir farinn veg hér í Boston, þetta er sko búið að vera góð ferð í allt þó svo að nokkrar rússíbanaferðir hafa verið inn á milli. Að vera farin að sjá fyrir endann á þessu og að við séum að komast heim til okkar er dásamlegt og að það hafi verið hægt að hjálpa Björgvini er náttúrulega himnasending!
Ég get ekki beðið að hitta mömmu mína og pabba og knúsa þau vel og lengi og alla þá sem standa okkur næst :)
Knús og kram frá Boston.
Ásdís og Björgvin Arnar
Thursday, June 2, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Bara æðislegt að það sé farið að styttast í heimför, þið eruð algjörar hetjur :)
Hlökkum mikið til að sjá ykkur
Aggi, Svava, Hulda María og Stefán Logi
En yyyndislegt :) Það verður munur að geta verið heima hjá sér í rólegheitum og notið þess að vera í ró og næði og láta sér batna :O) Skal hugsa vel til ykkar og bólgnanna í hálsi og að fá ró í taugakerfi og huga :O) Stórt knús frá Óla frænda og hver veit - kannski sjáumst við núna í júní ef allt gengur upp hjá ykkur :O) Við verðum nebblega á landinu 12-20 júní ;)
Grillveisla i götunni þegar þið komið heim. Hólmar með þetta fína grill,pall og heita-pott.
Kveðja Svölutjörn 49 og Landspítalinn ;)
Mikið verður nú gott að fá ykkur heim og vonandi styttist í að Björgvin geti komið í leikskólann sinn... Við bíðum spennt eftir að fá litlu hetjuna til okkar. Ganngi ykkur vel á lokametrunum baráttuknús frá Holti.
Kristín
Frábært að það sé loksins að sjá fyrir endan á þessu og Keflavíkin nálgist óðum... Hann verður kominn á fullt innan tíðar :-)
Ella María
Gott að heyra :) Sumarið byrjar þegar þið komið heim!
kveðja
Lóa
Frábært, vonandi gengur allt samkvæmt áætlun í dag!
Mikið verður nú gott fyrir ykkur að komast heim í kotið ykkar :)
Kv,
Hrannar
Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag, allt sem hefur gerst á einum mánuði! Þið eruð líka ótrúleg mæðgin, fyrirmyndir mínar, og það verður yndislegt að fá ykkur heim.
Bjarki
Já þvílíkur rússíbani og úber maraþon sem þetta er búið að vera hjá ykkur. Og þið eruð þvílíkt búin að standa ykkur eins og hetjurnar sem þið auðvitað eruð :)
Mikið verður yndislegt fyrir ykkur að komast heim, vonandi verður það sem fyrst!
Risaknús
Sunna og Magnús
Það verður gott að fá ykkur heim! Knús til ykkar! Hanna María
Dásamlegt að heyra að hann er að braggast og að það sé að líða að útskrift.
kv. Inga Birna og co.
Post a Comment