Björgvin í lestinni. |
Við fengum aðstoð á flugvellinum í Boston til að koma okkur að hliðinu, þegar við komum með leigubílunum (þurftum tvo vegna mikils farangurs!) þá stóð kona með nafninu hans Björgvins á skilti. Hún fylgdi okkur í innritun og í gegnum tollinn. Þvílíkur munur þar sem við þurftum ekki að bíða í neinni röð og fengum afgreiðslu strax.
Hann náði svo að sofa vel í nótt og hvíla sig og er búinn að borða ágætlega og því var mikill munur á honum frá því í gær. Hann var orkumeiri og var stöðugri þegar hann gekk. Ég hef trú á því að hann verði orðinn miklu betri í lok vikunnar. Þó svo að bataferlið muni taka 6-8 vikur þá munar nú um hvern dag sem líður.
Kær kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar
10 comments:
Velkomin heim gott að vera búinn að fá ykkur aftur
Hann verður sennilega fljótur að
jafna sig!
Kv. Nína
Velkomin heim:-)
kveðja Inga Huld
Home sweet home :)
Risaknús til ykkar frá Stokkhólmi, Björgvin hörkutól verður örugglega fljótur að jafna sig.
Sunna og Magnús
Æðislegt að þið eruð komin heim:)
Gangi ykkur vel í bataferlinu.
Hilsen frá Aarhus
Bylgja Dögg
Velkomin heim mín kæru! Hlakka til að hitta ykkur! Knús, Hanna María
Frábært að ferðin heim gekk svona vel og allt sé að smella saman hjá ykkur mín kæra. Hlakka rosa til að hitta þig vonandi á þriðjudaginn ,)
Kossar
Sirrý
Heima er best :)
Kv,
Hrannar
Hjartanlega velkomin heim naglar!!! Gott að heyra hvað heimferðin tókst vel ;)
Velkomin heim! Kv. Guðrún Þóra
Post a Comment