Saturday, June 4, 2011

Dagur 34 í Boston - Heimferð

Ótrúlegt en satt þá erum við á leiðinni heim. Við erum búin að ferðast um borgina, í gær og í dag og höfum haft það gott í sólinni. Björgvin er ennþá mjög slappur og getur lítið gengið, hann riðar alveg og skelfur.

Það er ekki laust við að mamman sé með dálítinn kvíða að vera komin af spítalanum, úr örygginu og nú er enginn að fylgjast með okkur og við eigum bara að fara í flugvél án fylgdar læknis. Það er náttúrulega ótrúlega gott að okkur sé treyst í þetta ferðalag, eða Björgvini sé treyst í þetta, en mikið verð ég fegin þegar við verðum komin heim í Svölutjörn! :)

Við erum búin að tjékka okkur út af gistiheimilinu en erum þar ennþá og sitjum í eldhúsinu að fá okkur að borða, allt er klappað og klárt. Við leggjum af stað á flugvöllinn eftir einn og hálfan tíma og fáum svo aðstoð á flugvellinum með allt dótið okkar.

Sjáumst á Ice! :)
Ásdís og Björgvin Arnar

6 comments:

Anonymous said...

Góða ferð heim! Það verður svooo gott að vita af ykkur í Svölutjörn :)

Bjarki

Anonymous said...

Góða heimferð! :)

Kv,
Hrannar

Sunna og Magnús said...

Góða ferð dúllurnar okkar :*
Þvílíkt sem það verður næs fyrir ykkur að komast heim! :)

Sunna og Magnús

Anonymous said...

Vonandi gekk ferðin heim vel og vonandi verður batinn nú á bullandi siglingu upp á við!!!

Knús á ykkur,
Þórey Arna

Halldór said...

Vonandi gekk ferðin heim vel og gott að heyra að allt sé á réttri leið

Kristrún said...

Það er frábært að lesa að Björgvin hafi náð þessum bata og sé kominn heim :)

Vonandi jafnar Björgvin sig fljótt og vel !

kkv. Kristrún & Co