Til hamingju með daginn elsku drengurinn minn. Ótrúlegt að þú hefðir orðið átta ára í dag. Þú varst svo spenntur að verða 7 ára. Þú sagðir að "þegar ég verð 7 ára mamma þá eru bara nokkrir dagar þangað til Eyrún Arna verður 1 árs."
Þegar maðurinn minn spurði hvað Björgvin hefði fundist gott að borða þá mundi ég það ekki strax. Það var kannski vegna þess að hann borðaði svo lítið og erfitt var að koma mat og næringu ofan í hann. En honum fannst samt snakk og sósa góð, spurði mig stundum á hverjum degi "mamma, eigum við að hafa smá partý? hafa snakk og sósu og jólakakó? :)" og auðvitað var það í lagi, þó svo að það væri á hverjum degi, allt fyrir hann. Jólakakó var buildup hrært með ís og mjólk. Svo fannst honum piparsleikjó mjög góður og svartur ópal sem var mjög saltur. Mesta krútt í heimi.
Í kvöld þá komu mamma og pabbi hingað í mat, til að hittast og minnast elsku drengsins okkar. Sorgin lifir og lífið verður aldrei samt. Maður lærir að lifa með henni og að halda áfram. Björgvin var svo hlýr, tilfinningasamur og yndislegur. Hann hefði viljað að við Eyrún Arna værum hamingjusamar og það ætlum við okkur að vera. Lifa og njóta með hann í hjörtum okkar.
Elsku Björgvin Arnar, það er ekki hægt að lýsa því hve sárt við söknum þín. Minning þín lifir hjartaknúsarinn minn!
Þín mamma
Tuesday, February 3, 2015
Thursday, January 8, 2015
Gjöf til Barnaspítalans til minningar um Björgvin Arnar
Í morgun fórum við Vikar, ásamt Eyrúnu Örnu, og afhentum Barnaspítala Hringsins 82.000 kr. sem voru hluti af þátttökugjaldi í Reykjanesmaraþoni sem Lífsstíll Líkamsrækt hélt í haust. Frábært framtak Vikar og þúsund þakkir til allra sem tóku þátt og áttu því þátt í verki til góðs.
Ákveðið var að setja peninginn í það sem styttir börnum stundirnar á spítalanum og fengu Gróa og Sibba því peninginn til að setja í það sem er brýnast fyrir þau þessa stundina, Þeir sem hafa verið með börnin sín á spítalanum vita hve mikilvæg dægrastytting er fyrir þau. Leikstofan er undraveröld fyrir börnin í erfiðum aðstæðum.
Eyrún Arna fékk að leika sér á leikstofunni og fór hún beint í babú bílinn eins og Björgvin kallaði hann og var alveg sjúkur í. Alltaf þegar við komum á spítalann og áttum að mæta hjá lækni þá fórum við og náðum í bílinn fyrst.
Gott að koma á spítalann aftur, ef ætlað að heimsækja alla lengi en hef ekki haft mig í það. Frábært að hitta Gróu, Sibbu og sérstaklega Gylfa lækni.
Mínar bestu kveðjur,
Ásdís og Eyrún Arna

Thursday, January 1, 2015
Gleðilegt ár 2015 elsku engillinn minn
Við fórum að leiðinu hans Björgvins Arnars á Aðfangadag og var yndislegt að sjá fallega umhverfið hjá litla englinum okkar.
Nú er tæplega eitt og hálft ár síðan þú kvaddir okkur elsku drengur. Alltaf líður tíminn.
Þetta ár ætlum við Eyrún Arna að halda áfram að minnast þín og halda minningunni þinni á lofti.
Í vikunni hafði ég mig í það að skoða litlu skjátölvuna þína. Þar voru myndbönd sem þú tókst heima í Svölutjörn, á spítalanum og á leikskólanum sem ég hafði ekki séð áður. Þvílíkur fjársjóður að finna þetta, þetta var jólagjöfin mín frá þér elsku hjartað mitt. Þú hafðir svo mikinn áhuga á að mynda og búa til video til að horfa á seinna og sýna okkur í fjölskyldunni. Ég ætla að gefa mér tíma að skoða þetta allt á næstu dögum.
Ég elska þig og sakna meira en orð fá líst.

Subscribe to:
Posts (Atom)